Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.05.2014, Side 9

Læknablaðið - 01.05.2014, Side 9
R i T S T J Ó R n a R G R E i n LÆKNAblaðið 2014/100 269 Á undanförnum árum hefur svokallaður aðgerðaþjarki (robot) verið tekinn í notkun víða um lönd. Þjarki er kannske heppileg- asta íslenska orðið en það beygist: nf. þjarki, þf. þjarka, þgf. þjarka, ef. þjarka. Aðrar tillögur eins og Fingraslyngur eða Móalingur hafa verið nefndar en síðarnefnda nafnið bar hestur Jóns Arasonar. Áhaldið nýtist við margvíslegar skurðaðgerðir og telst nú til að mynda staðalbúnaður við brottnám á blöðruhálskirtli vegna staðbundins krabba- meins. Aðgerðin er í rauninni kviðsjáraðgerð með kostum þeirrar aðferðar. Skurðlæknir- inn stjórnar þó með þessu móti áhöldum sínum af meiri nákvæmni frá stjórnborði sem hann situr við. Nákvæmni allra hreyf- inga er ekki síður vegna framúrskarandi þrí- víddarmyndar sem birtist á vinnuskjánum. Af þessum sökum er hægt að hlífa betur fín- gerðum æðum og taugum sem liggja næst blöðruhálskirtlinum og sjá um stinningu getnaðarlimsins. Sama gildir um ytri þvag- lokuna sem er staðsett í grindarbotninum rétt neðan kirtilsins. Þrátt fyrir nafngiftina framkvæmir áhaldið engar hreyfingar af sjálfsdáðum heldur einvörðungu þær sem skurðlæknirinn leggur til. Kostir áhaldsins koma sérstaklega fram við aðgerðir í þröngu rými eins og grindarholinu og nýtist það því bæði konum og körlum. Vegna þessara augljósu kosta hefur tæknin farið sigurför um heiminn. Þá hafa sjúkrahús komið sér upp þessari tækni ekki síður til að halda í skurðlækna sem og sjúklinga sem færu ella annað. Nú hafa nær öll háskólasjúkrahús á Norðurlöndum tekið svona þjarka í notkun. Lykilatriði við innleiðingu þjarka er góð þjálfun skurðlækna og alls aðgerðarteymis- ins. Á Landspítala eru nú komnir til starfa einstaklingar sem hafa reynslu af notkun áhaldsins og sama gildir um fjölmarga sem eru við sérnám utanlands í hinum ýmsu greinum skurðlækninga. Þetta kom glöggt fram á nýafstöðnu skurðlæknaþingi þar sem fimm íslenskir skurðlæknar lögðu af eigin reynslu til málanna. Hvað tefur þá Orminn langa? Jú það eru peningar, en stofnkostnaður þjarka er um 250 milljónir íslenskra króna og rekstrar- kostnaður er umtalsverður. Á móti vegur þó styttri sjúkrahúslega og minni líkur á fylgikvillum til skemmri eða lengri tíma. - Verðmæti án verðmiða. Fyrir tæknifælinn naumhyggjumann er þessi kostnaður allstór biti í háls. Það vakna í þessu sambandi áleitnar spurningar um hratt vaxandi kostnað víða í heilbrigðis- kerfinu. Hvar liggja þolmörkin? Hversu mikil getur slagsíðan orðið? Ég hef þó sannfærst um ágæti þessarar aðferðafræði eftir að hafa heimsótt sjúkra- hús austanhafs og vestan og lít svo á að það sé ekki spurning um hvort, heldur hvenær við tökum þátt í þessari þróun læknis- fræðinnar. Endurheimt skurðlækna og metnaður fyrir hönd íslensks samfélags er ekki síður mikilvægur drifkraftur í þessu sambandi. – Það örlar jafnvel á Ungmenna- félagsslagorðum. Að þessu sögðu vaknar spurningin: „Hvernig vinnur maður slíku máli braut- argengi?“ Hér þarf ekki bara að sann- færa aðila innan og utan Landspítala um mikilvægi þessa erindis, heldur er hefð- bundin íslensk leið sú að afla gjafafjár til slíkra nýjunga. Möguleg framlög úr tækja- kaupasjóði spítalans duga skammt þó svo eindreginn vilji stjórnenda sé til staðar. Það hefur því farið svo að víða hefur verið leitað fanga og meðal annars til einstaklinga sem þekkja til málsins. Það þýðir á mannamáli að læknirinn leitar til skjólstæðinga sinna. Þetta hljómar ekki gæfulega, en þannig gerast gjarnan kaupin á eyrinni. Erindinu hefur verið vel tekið og einstaklingar, fyrir- tæki, félagasamtök og kollegar hafa lagt til málsins bæði beint og óbeint. Stefnt er að því að safna helmingi stofnkostnaðarins og var sérstakt félag stofnað í þeim tilgangi með aðstoð KPMG og sér Íslandsbanki um fjárumsýslu. Bæði fyrirtækin gera þetta án endurgjalds. Tæpar 40 milljónir eru nú í hendi en fleiri vonandi í skógi. Ef þú getur lagt til málsins eða vilt kynna þér það nánar er netslóðin: islands- banki.is/robot Þúfan veltir hlassinu. Þjark um Þjarka og Móaling Eiríkur Jónsson yfirlæknir þvagfæra skurðlækninga Landspítala eirikjon@landspitali.is about a robot Eiríkur Jónsson MD, Chief of Urology, Department of Urology Landspitali University Hospital, 101 Reykjavik Bayer A/S. Arne Jacobsens Allé 13. 2300 København S. *svo sem hjartabilun, háþrýsting, aldur ≥ 75 ára, sykursýki, sögu um heilablóðfall eða skammvinnt blóðþurrðarkast. Heimildir 1. Samantekt á eiginleikum lyfs fyrir Xarelto. 2. Patel MR et al. Rivaroxaban versus warfarin in nonvalvular atrial fibrillation. N Engl J Med 2011; 365:883-891. Xarelto® (rivaroxaban) – fyrirbyggir heilablóðfall og segarek hjá fullorðnum sjúklingum með gáttatif án lokusjúkdóms og einn eða fleiri áhættuþætti*1 ♦♦ Varnar heilablóðfalli og segareki að lágmarki til jafns við warfarín2 ♦♦ Sambærileg blæðingarhætta og í meðferð með warfaríni en marktækt færri innankúpublæðingar og dauðsföll vegna blæðinga2 ♦♦ Ein tafla á dag1 L. IS .0 4. 20 13 .0 03 3 Fyrsti beini hemillinn á storkuþátt Xa til inntöku Lyfjaver óskar Læknablaðinu til hamingju með hundrað ára afmælið

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.