Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.05.2014, Blaðsíða 28

Læknablaðið - 01.05.2014, Blaðsíða 28
288 LÆKNAblaðið 2014/100 Í T i l E F n i 1 0 0 Á R a Ó S l i T i n n a R ú T G Á F u l æ k n a b l a ð S i n S Félag Íslenskra fjallalækna (FÍFL) hefur í allmörg ár skipulagt vorferðir á ýmsa tinda í Vatnajökli, meðal annars Hvannadals- hnjúk, Hrútfjallstindana fjóra (1875 m), Þverártindsegg (1554 m) og Miðfellstind (1420 m). Það hafði lengi verið á stefnuskránni að komast á Sveinstind. Fyrsta atlagan var gerð vorið 2012, en þá voru 250 ár liðin frá fæðingu Sveins. Ákveðið var að fara Hrútárjökuls- leið (mynd 7), en Íslenskir fjallaleiðsögumenn höfðu nokkrum árum áður farið með hóp á tindinn þessa leið. Gengið var á mann- broddum yfir sporð Hrútárjökuls, tignarlegs skriðjökuls sem fellur niður austanverðan Öræfajökul. Þaðan var gengið yfir Ærfjall að stórum klettadranga, Drangakletti. Síðan var haldið eftir austur- hluta Hrútárjökuls og stefnan sett á brattan og þverhníptan hrygg upp að rótum Sveinstinds. Þessi leið er ægifögur en talsvert um stórar jökulsprungur sem krækja þurfti fyrir (mynd 8). Þrátt fyrir frábært útsýni urðum við frá að hverfa í 1650 metra hæð eftir að snjóflóð féll af hryggnum sem leið okkar átti að liggja eftir (www.fifl.is). Mikil sólbráð var á leiðinni upp Hrútárjökul og snarpur vindur í fangið. Færið var því þungt og gangan gekk nærri þreki göngumanna. Þrátt fyrir 17 klukkustunda streð varð þessi magnaða gönguferð þó aðeins til að auka áhuga okkar á að komast á topp Sveinstinds. Næsta vor var hafinn undirbúningur að nýrri göngu á tindinn. Í þetta sinn fannst okkur freistandi að feta í fótspor Sveins sjálfs og kanna hina fáförnu Kvískerjaleið. Leið þessi er talin vera illfær en Flosi Björnsson bóndi á Kvískerjum gekk hana þó með systkinum sínum, Ara og Guðrúnu, árið 1936.6 En einhverra hluta vegna féll Kvískerjaleið í gleymsku. Það var ekki fyrr en í júní 2004 sem þrír göngugarpar, með Egil Einarsson efnaverkfræðing í fararbroddi, „enduruppgötvuðu“ leið Sveins Pálssonar frá Kvískerjum. Lýstu þeir leiðinni í ágætri grein í Morgunblaðinu sem birtist í apríl 2013.7 Með GPS-punkta þeirra í farteskinu töldum við áætlun okkar raunhæfa. Lagt var af stað frá Kvískerjum um klukkan fjögur að nóttu 18. maí 2013. Í hópnum voru 10 félagar úr FÍFL, 10 meðlimir úr hinu öfluga göngufélagi Mammút-systrum, auk leiðangursstjóranna Guðmundar „Stóra“ Jónssonar, og félaga hans, Óðins og Arnars. Fyrst var haldið upp allbratta heiði þangað til komið var að brekkum með mikilli sólbráð. Þar var snjórinn stundum hné- djúpur og sums staðar í klof. Við gættum þess að halda okkur efst á hryggjum og forðast gil og dali sem liggja beggja vegna við gönguleiðina. Í tæplega 1000 m hæð braust sólin fram. Það hélst brakandi blíða með sólskini það sem eftir lifði ferðar. Varð því að fækka fötum og bera á sig sólarvörn. Á þessum tímapunkti rifjaðist upp fyrir okkur lýsing Sveins Pálssonar á aðstæðum og fylgdarmönnum sínum. Annan þeirra taldi hann ranglega þjást af háfjallaveiki en slík einkenni koma ekki fram fyrr en í minnst 2500 m hæð.8 Leið okkar lá svo eftir heiðinni að jökulrönd undir tignarlegu fjalli, Rótarfjallshnúk eystri. Þaðan var haldið upp hrygg með mikilfenglegt útsýni á báðar hendur: Kvíárjökul sunnan og vestan leiðar og Hrútárjökul austan og norðan til (mynd 9). Einnig sást í Hnappana, Esjufjöll, Mávabyggðir, Snæfell syðra og Þverártinds- egg. Þarna töldum við líklegt að Sveinn Pálsson hefði fengið inn- blástur að kenningum sínum um eðli skriðjökla, en hann var einn sá fyrsti í heiminum sem áttaði sig á rennsli þeirra. Í samanburði við leiðangur okkar ári áður upp Hrútárjökul reyndist Kvískerjaleiðin afar örugg á þessum sólríka vordegi. Mynd 10. Hvannadalshnjúkur séður frá Sveinstindi. Ef vel er að gáð má sjá göngumenn mjakast upp brekkur Hvannadalshnjúks vinstra megin á myndinni, líkt og maurar á mauraþúfu. Úr þessari átt er Hnjúkurinn afar svipmikill ásýndar. Mynd: Engilbert Sigurðsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.