Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.05.2014, Page 38

Læknablaðið - 01.05.2014, Page 38
298 LÆKNAblaðið 2014/100 U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R Sérnámsstaða í heimilislækningum laus til umsóknar Við Heilbrigðisstofnun Suðurlands er laus til umsóknar ein staða sérnámslæknis í heimilislækningum við heilsugæsluna á Selfossi. umsóknar- frestur er til 30. maí nk. og er reiknað með að námsstaðan sé til þriggja ára. Aðalstarfsstöð verður heilsugæslan á Selfossi og verður námið byggt á marklýsingu fyrir sérnám í heimilislækningum en einnig er gert ráð fyrir samstarfi við kennslustjóra sérnáms í heimilislækningum um fræðilegt nám sem fer fram í reglulegu hópstarfi í Reykjavík. Til greina kemur að taka hluta af náminu erlendis í samráði við kennslustjóra. Laun samkvæmt kjarasamningi Læknafélags Íslands og fjármálaráðherra. upplýsingar um stöðuna veita Arnar Þór Guðmundsson yfirlæknir og kennslustjóri heilsugæslunni Selfossi í síma 480-5100 arnar@hsu.is og Óskar Reykdalsson, framkvæmdastjóri lækninga í síma 868-1488 oskar@hsu.is umsóknum ásamt staðfestum upplýsingum um læknismenntun og læknisstörf sendist á viðeigandi eyðublöðum til Óskars Reykdalssonar. Heilbrigðisstofnun Suðurlands var stofnuð 1. sept. 2004 við sameiningu heilsugæslustöðva á Suðurlandi og Heilbrigðisstofnunarinnar á Selfossi. Þjónustu- svæðið nær til um 20.000 íbúa á Suðurlandsundirlendinu. Um er að ræða 8 heilsugæslustöðvar, sjúkrahús á Selfossi með 28 legu- og dagdeildarrúmum og 40 hjúkrunarrúmum. Stofnunin sinnir ennfremur heilbrigðis- þjónustu á Litla Hrauni. Alls eru um 226 stöðugildi við Heilbrigðisstofnun Suðurlands. dagskrá: 1) Skýrsla stjórnar fyrir síðasta starfsár. 2) Endurskoðaður ársreikningur lagður fram. 3) Stjórnarkjör. Á þessum aðalfundi verður kosinn formaður, varaformaður, gjaldkeri og meðstjórnandi. 4) Kosning aðal- og varafulltrúa á komandi aðalfund LÍ. 5) Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga og tveggja varamanna. 6) Fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár. 7) Lagabreytingartillögur ef löglega fram bornar. 8) Málefni Læknablaðsins. 9) önnur mál. Þeir sem hyggjast gefa kost á sér til stjórnarstarfa tilkynni það á netfangið: steinnj@lsh.is eigi síðar en viku fyrir aðalfundinn. Stjórn læknafélags Reykjavíkur aðalfundur læknafélags Reykjavíkur haldinn í Hlíðasmára 8, þriðjudaginn 27. maí kl. 17:00

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.