Læknablaðið - 01.05.2014, Side 60
Astmi
Hjá mörgum astmasjúklingum er mikið að gera og jafnvel lítil áminning
um astma getur haft mikil áhrif á daglegt líf.2 Veldu Relvar Ellipta
(flútikasónfúróat/vílanteról) hjá sjúklingum þar sem ekki næst nægilega góð
stjórn hjá með barksterum til innöndunar:1
Fyrsta ICS/LABA samsetningin sem veitir viðvarandi 24-klst. verkun1,3
Með skömmtun einu sinni á dag1
Í innöndunartæki sem er svo auðvelt í notkun að sjúklingar kjósa
það frekar en innöndunartækið sem þeir eru að nota4 (flútikasónfúróat/vílanteról)
® ®
24 klst. verkun. Mjög einfalt.
Relvar® Ellipta® er ætlað til notkunar við reglulega astmameðferð hjá fullorðnum og unglingum
12 ára og eldri þegar notkun samsetts lyfs á við: Þegar ekki næst viðunandi stjórn á sjúkdómnum
með barksterum til innöndunar og skjótvirkum beta2-örvum til innöndunar „eftir þörfum“.
Þ ví þ a ð er
ekki rými
fyrir astma
Relvar® Ellipta® Ellipta innöndunarduft, afmældir skammtar. Hver stök innöndun gefur skammt (skammt
sem fer í gegnum munnstykkið) sem er 22 míkróg af vílanteróli (sem trífenatat) og 92 eða 184 míkróg af
flútíkasónfúróati. Þetta samsvarar afmældum skammti sem er 25 míkróg af vílanteróli (sem trífenatat) og 100
eða 200 míkróg af flútíkasónfúróati. Hjálparefni með þekkta verkun: Hver skammtur inniheldur u.þ.b. 25 mg af
laktósa (sem einhýdrat). Ábendingar: Astmi: Relvar Ellipta er ætlað til notkunar við reglulega astmameðferð
hjá fullorðnum og unglingum 12 ára og eldri þegar notkun samsetts lyfs (langverkandi beta2-örva og barkstera
til innöndunar) á við: Þegar ekki næst viðunandi stjórn á sjúkdómnum með barksterum til innöndunar og
skjótvirkum beta2-örvum til innöndunar „eftir þörfum“. Langvinn lungnateppa (aðeins Relvar Ellipta 92/22
míkróg): Relvar Ellipta er ætlað til meðferðar á einkennum langvinnrar lungnateppu hjá fullorðnum með FEV1
< 70% af áætluðu eðlilegu gildi (eftir gjöf berkjuvíkkandi lyfs) og sögu um endurtekna versnun, þrátt fyrir reglulega
meðferð með berkjuvíkkandi lyfjum. Skammtar og lyfjagjöf: Astmi: Fullorðnir og unglingar 12 ára og eldri: Ein
innöndun af Relvar Ellipta 92/22 míkróg einu sinni á dag. Sjúklingar finna yfirleitt fyrir bættri lungnastarfsemi
innan 15 mínútna frá innöndun Relvar Ellipta. Hins vegar skal upplýsa sjúklinginn um að regluleg dagleg notkun
sé nauðsynleg til að viðhalda stjórn á einkennum astma og að notkun skuli halda áfram, jafnvel þó einkenni
hverfi. Ef einkenni koma fram á tímabilinu á milli skammta, skal nota skjótvirkan beta2-örva til að létta strax
á einkennum. Íhuga skal 92/22 míkrógramma upphafsskammt af Relvar Ellipta hjá fullorðnum og unglingum
12 ára og eldri sem þarfnast lítils til meðalstórs skammts af barksterum til innöndunar ásamt langverkandi
beta2-örva. Ef ekki næst fullnægjandi stjórn á sjúkdómnum með Relvar Ellipta 92/22 míkróg, má auka skammtinn
upp í 184/22 míkróg, sem getur gefið betri árangur við astmastjórnun. Heilbrigðisstarfsmaður skal endurmeta
sjúklinga reglulega þannig að þeir haldi áfram að fá kjörstyrkleika af flútíkasónfúróati/vílanteróli og að honum
sé aðeins breytt samkvæmt læknisráði. Skammtinn skal aðlaga þannig að alltaf sé notaður minnsti skammtur
sem nær virkri stjórn á einkennum. Íhuga skal notkun Relvar Ellipta 184/22 míkróg hjá fullorðnum og unglingum
12 ára og eldri sem þurfa að fá hærri skammta af barksterum til innöndunar ásamt langverkandi beta2-örva.
Langvinn lungnateppa: Fullorðnir 18 ára og eldri: Ein innöndun af Relvar Ellipta 92/22 míkróg einu sinni á dag.
Relvar Ellipta 184/22 míkróg er ekki ætlað til notkunar hjá sjúklingum með langvinna lungnateppu. Enginn
viðbótarávinningur er af notkun 184/22 míkrógramma skammts samanborið við 92/22 míkróg skammtinn og
hætta á aukaverkunum svo sem lungnabólgu og altækum aukaverkunum tengdum barksterum er hugsanlega
aukin. Frábendingar: Ofnæmi fyrir virku efnunum eða einhverju hjálparefnanna. Markaðsleyfishafi:
Glaxo Group Limited, 980 Great West Road, Brentford, Middlesex TW8 9GS. Bretland. Fulltrúi markaðsleyfishafa:
GlaxoSmithKline ehf. Þverholti 14, 105 Reykjavík, Ísland, Sími 530 3700. Dagsetning endurskoðunar textans:
13. nóvember 2013. Upplýsingar um aukaverkanir, milliverkanir, varnaðarorð og önnur mikilvæg atriði
má nálgast í sérlyfjaskrá – www.serlyfjaskra.is
Pakkningar og verð (mars 2014)
Relvar Ellipta 92 mcg/22 mcg, innönddu, 30 skammtar R, 0 Kr. 9.268
Relvar Ellipta 184 mcg/22 mcg, innönddu, 30 skammtar R, 0 Kr. 11.556
Aukaverkanir má tilkynna á vef Lyfjastofnunar: www.lyfjastofnun.is/Aukaverkanir/tilkynna eða
til GlaxoSmithKline í síma 530 3700.
Heimildir: 1. Samantekt á eiginleikum lyfs fyrir Relvar Ellipta (flútíksasónfúróat/vílanteról), samþykkt af EMA í
nóvember 2013. 2. Bellamy D et al. Poor perceptions and expectations of asthma control: Results of the international
Control of Asthma Symptoms (ICAS) survey of patients and general practitioners. Prim Care Respir Med 2005;
14: 252-258. 3. Woodcock A et al. Efficacy and safety of fluticasone furoate/vilanterol compared with fluticasone
propionate/salmeterol combination in adult and adolescent patients with persistent asthma: a randomized trial.
Chest 2013; 144(4): 1222-1229. 4. Svedsater H et al. Qualitative assessment of attributes and ease of use of
the ELLIPTATM dry powder inhaler for delivery of maintenance therapy for asthma and COPD. BMC Pulmonary
Medicine 2013; 13: 72.
Mars 2014 IS/FFT/0003/14
IS_FFT_0003_14_Relvar_Ad_210x297.indd 1 13.03.2014 13:41:52