Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.05.2015, Blaðsíða 33

Læknablaðið - 01.05.2015, Blaðsíða 33
LÆKNAblaðið 2015/101 265 U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R Ólíkt fólk en með svipaða eiginleika þú eyðir ekki heilli önn upp á von og óvon um að komast áfram. Helga Margrét: Ég æfði alltof mikið og skemmdi jafnvel fyrir mér með ofþjálfun. Ég er gríðarleg keppnismanneskja og geng stundum of nærri mér og það á ekki síður við í náminu. Ég er nú samt að vona að ég hafi lært af þessari reynslu og geti stund- um staðið upp frá lestrinum og sagt: Nú læri ég ekki meira í kvöld! Það hefur ekki gengið neitt voðalega vel fram að þessu en ég vona að lesi ekki yfir mig eins og ég æfði yfir mig. Það væri nú ekki gaman að brenna út sem læknanemi! Gísli Þór: Mér finnst ég sjá svipaða eiginleika hjá öðrum sem eru í árgangin- um. Kannski veljast þannig einstaklingar í greinina en þetta er þó ólíkt fólk að mörgu öðru leyti. Þetta er mjög skemmtilegur hópur og það kom mér eiginlega á óvart hvað félagslífið er öflugt í deildinni. Helga Margrét: Það nýttist mér gríðar- lega vel að hafa lokið við tvö ár í næringar- fræði. Námið í lífeðlisfræðinni skilaði mér í gegnum inntökuprófið og tveggja ára reynsla af háskólanámi er ómetanleg. Gísli Þór: Námið sjálft hefur verið mjög skemmtilegt í vetur en ég vissi nokkurn veginn að hverju ég gengi þar sem ég þekki nokkra sem komnir eru á annað og þriðja ár. Kennslan er góð og almennt er haldið vel utan um námið af hálfu deildar- innar. Þetta fyrsta ár byrjar á upprifjun af eðlis- og efnafræði en stærsti kúrsinn er anatómían og síðan er kúrs í frumulíf- fræði. Enn er spítalinn frekar fjarlægur en þó fengum við stutta kynningu á klínísku starfi. Í vetur hefur námið verið einstak- lingsmiðað og prófað í lok hverrar lotu. Helga Margrét: Ég er gríðarlega ánægð og þakklát fyrir tímann sem ég lagði í íþróttirnar. Ég ferðaðist um allan heim, kynntist fullt af frábæru fólki og lærði heilmargt um sjálfa mig og veröldina. Sjöþraut er mjög erfið keppnisgrein en þetta var eina greinin sem mig langaði að stunda. Ég vildi ekki fara að æfa og keppa í einni grein, og draga þannig úr álaginu. Það var annaðhvort sjöþrautin eða ekkert fyrir mig. Í dag fer ég helst ekki inn í frjálsíþróttahöll, mér finnst best að vera alveg laus frá þessu og stunda mína hreyfingu á allt öðrum forsendum. Ég hreyfi mig á hverjum degi, sú þörf hverfur ekki, enda algjörlega nauðsynlegt að vega á móti þessum löngu setum sem námið útheimtir. En þarna þarf ég líka að passa mig því mér finnst svo gaman að æfa að ég hef tilhneigingu til að fara fyrr á fætur til að ná tveimur tímum í hreyfingu áður en skólinn byrjar. Ég á erfitt með að stilla mig og verð að minna mig á að ég er ekki lengur atvinnumaður í íþróttum og þarf ekki að æfa 2-4 tíma á dag. En þetta er ekkert alvarlegt vandamál og ég er með- vituð um þetta. Ég held reyndar að það séu margir í læknanáminu líkir mér að þessu leyti. Þetta er ósérhlífið fólk og ekki með neitt væl. Gísli Þór: Það er alltof snemmt að svara því hvaða sérgrein ég gæti hugsað mér að læra. Ég held að maður eigi eftir að skipta nokkrum sinnum um skoðun í gegnum námið, enda fáum við nasasjón af helstu sérgreinunum þegar komið er út í klíník- ina og rétt að halda opnum huga gagnvart því öllu. Helga Margrét: Námið í vetur hefur verið mjög skemmtilegt. Fjölbreytt og það hefur komið mér ánægjulega á óvart hvað vel er haldið utan um námið. Allt er á hreinu og skipulagið alveg pottþétt. Kenn- ararnir eru frábærir og bekkurinn er mjög samheldinn. Þetta gæti ekki verið betra. Inntökuprófið er miklu betra fyrirkomulag en klausus því þegar námið byrjar eru allir komnir inn og engin samkeppni innan hópsins um að komast í gegn í lok fyrstu annarinnar. Það eru allir samtaka um að klára þetta og verða læknar vorið 2020. Gísli Þór Axelsson er Selfyssingur og vakti snemma athygli fyrir mikla námshæfileika. Hann lauk grunn- skólanámi á 9 árum og stúdentsprófi frá Fjöl- brautaskóla Suðurlands á Selfossi á þremur og hálfu ári og var dúx í sín- um útskriftarhópi. Hann er því tvítugur á þessu ári og greinilega ekki síðri keppnismaður en Helga Margrét þó yfirbragðið sé rólegt og yfirvegað.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.