Læknablaðið - 01.05.2015, Blaðsíða 33
LÆKNAblaðið 2015/101 265
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
Ólíkt fólk en með svipaða eiginleika
þú eyðir ekki heilli önn upp á von og óvon
um að komast áfram.
Helga Margrét: Ég æfði alltof mikið og
skemmdi jafnvel fyrir mér með ofþjálfun.
Ég er gríðarleg keppnismanneskja og geng
stundum of nærri mér og það á ekki síður
við í náminu. Ég er nú samt að vona að ég
hafi lært af þessari reynslu og geti stund-
um staðið upp frá lestrinum og sagt: Nú
læri ég ekki meira í kvöld! Það hefur ekki
gengið neitt voðalega vel fram að þessu
en ég vona að lesi ekki yfir mig eins og ég
æfði yfir mig. Það væri nú ekki gaman að
brenna út sem læknanemi!
Gísli Þór: Mér finnst ég sjá svipaða
eiginleika hjá öðrum sem eru í árgangin-
um. Kannski veljast þannig einstaklingar í
greinina en þetta er þó ólíkt fólk að mörgu
öðru leyti. Þetta er mjög skemmtilegur
hópur og það kom mér eiginlega á óvart
hvað félagslífið er öflugt í deildinni.
Helga Margrét: Það nýttist mér gríðar-
lega vel að hafa lokið við tvö ár í næringar-
fræði. Námið í lífeðlisfræðinni skilaði mér
í gegnum inntökuprófið og tveggja ára
reynsla af háskólanámi er ómetanleg.
Gísli Þór: Námið sjálft hefur verið mjög
skemmtilegt í vetur en ég vissi nokkurn
veginn að hverju ég gengi þar sem ég
þekki nokkra sem komnir eru á annað og
þriðja ár. Kennslan er góð og almennt er
haldið vel utan um námið af hálfu deildar-
innar. Þetta fyrsta ár byrjar á upprifjun
af eðlis- og efnafræði en stærsti kúrsinn
er anatómían og síðan er kúrs í frumulíf-
fræði. Enn er spítalinn frekar fjarlægur en
þó fengum við stutta kynningu á klínísku
starfi. Í vetur hefur námið verið einstak-
lingsmiðað og prófað í lok hverrar lotu.
Helga Margrét: Ég er gríðarlega ánægð
og þakklát fyrir tímann sem ég lagði í
íþróttirnar. Ég ferðaðist um allan heim,
kynntist fullt af frábæru fólki og lærði
heilmargt um sjálfa mig og veröldina.
Sjöþraut er mjög erfið keppnisgrein en
þetta var eina greinin sem mig langaði
að stunda. Ég vildi ekki fara að æfa og
keppa í einni grein, og draga þannig úr
álaginu. Það var annaðhvort sjöþrautin
eða ekkert fyrir mig. Í dag fer ég helst ekki
inn í frjálsíþróttahöll, mér finnst best að
vera alveg laus frá þessu og stunda mína
hreyfingu á allt öðrum forsendum. Ég
hreyfi mig á hverjum degi, sú þörf hverfur
ekki, enda algjörlega nauðsynlegt að vega
á móti þessum löngu setum sem námið
útheimtir. En þarna þarf ég líka að passa
mig því mér finnst svo gaman að æfa að
ég hef tilhneigingu til að fara fyrr á fætur
til að ná tveimur tímum í hreyfingu áður
en skólinn byrjar. Ég á erfitt með að stilla
mig og verð að minna mig á að ég er ekki
lengur atvinnumaður í íþróttum og þarf
ekki að æfa 2-4 tíma á dag. En þetta er
ekkert alvarlegt vandamál og ég er með-
vituð um þetta. Ég held reyndar að það
séu margir í læknanáminu líkir mér að
þessu leyti. Þetta er ósérhlífið fólk og ekki
með neitt væl.
Gísli Þór: Það er alltof snemmt að svara
því hvaða sérgrein ég gæti hugsað mér að
læra. Ég held að maður eigi eftir að skipta
nokkrum sinnum um skoðun í gegnum
námið, enda fáum við nasasjón af helstu
sérgreinunum þegar komið er út í klíník-
ina og rétt að halda opnum huga gagnvart
því öllu.
Helga Margrét: Námið í vetur hefur
verið mjög skemmtilegt. Fjölbreytt og það
hefur komið mér ánægjulega á óvart hvað
vel er haldið utan um námið. Allt er á
hreinu og skipulagið alveg pottþétt. Kenn-
ararnir eru frábærir og bekkurinn er mjög
samheldinn. Þetta gæti ekki verið betra.
Inntökuprófið er miklu betra fyrirkomulag
en klausus því þegar námið byrjar eru allir
komnir inn og engin samkeppni innan
hópsins um að komast í gegn í lok fyrstu
annarinnar. Það eru allir samtaka um að
klára þetta og verða læknar vorið 2020.
Gísli Þór Axelsson er
Selfyssingur og vakti
snemma athygli fyrir
mikla námshæfileika.
Hann lauk grunn-
skólanámi á 9 árum og
stúdentsprófi frá Fjöl-
brautaskóla Suðurlands
á Selfossi á þremur og
hálfu ári og var dúx í sín-
um útskriftarhópi. Hann
er því tvítugur á þessu ári
og greinilega ekki síðri
keppnismaður en Helga
Margrét þó yfirbragðið sé
rólegt og yfirvegað.