Læknablaðið - 01.05.2015, Qupperneq 48
280 LÆKNAblaðið 2015/101
Ö l D U n G a D E i l D
Stjórn Öldungadeildar
Magnús B. Einarson formaður, Þórarinn
Sveinsson ritari, Hörður Alfreðsson gjaldkeri,
Guðrún Agnarsdóttir, kristrún Benediktsdóttir.
Öldungaráð
Bergþóra Ragnarsdóttir, jóhann Gunnar
Þorbergsson, jón Hilmar Alfreðsson, Sigurður
E. Þorvaldsson, Tryggvi Ásmundsson, Valgarður
Egilsson.
Umsjón síðu
Páll Ásmundsson
Vefsíða: http://innri.lis.is/oldungadeild-li
Meðfylgjandi mynd fann ég í fórum
tengdaföður míns, Sigurðar heitins Sig-
urðssonar fyrrum landlæknis. Myndin
olli mér nokkrum heilabrotum, einkum
varðandi tilefni hennar. Allnokkra á
myndinni bar ég kennsl á og enn fleiri
með aðstoð Védísar Skarphéðinsdóttur
og Ingu Láru Baldvinsdóttur safnvarðar
Ljósmyndasafns Íslands. Tilgáta var um
að þetta væru kennarar læknadeildar Há-
skóla Íslands. Væri svo, fannst mér skjóta
skökku við að Guðmundur Björnsson
landlæknir sæti fremst fyrir miðju því ég
vissi að hann kenndi fremur lítið eftir að
læknadeildin tók til starfa en vissi einnig
að Guðmundur Magnússon sem ég taldi
líklega sitja nafna sínum til vinstri handar
var fyrsti forseti læknadeildar.
Þá flaug mér í hug hvort hér sætu kenn-
arar Læknaskólans í Reykjavík en hann
starfaði frá 1876 til 1911 er hann var lagður
niður við stofnun Háskólans. Ég fann
grein eftir Árna Árnason lækni sem hann
skrifaði rétt fyrir andlát sitt. Birtist greinin
í Læknablaðinu 1973 og nefnist Læknaskól-
inn í Reykjavík.
Í grein Árna eru taldir þeir 8 kenn-
arar er síðast kenndu við Læknaskólann.
Áður voru borin örugg kennsl á 6 þeirra
á myndinni og Guðmund Magnússon
með nokkurri vissu. Með samanburði við
myndir fundnar á timarit.is varð því slegið
föstu að Guðmundur og Vilhelm Bernhöft
tannlæknir væru einnig á myndinni. Hér
voru því á mynd allir síðustu kennarar
Læknaskólans í Reykjavík. Allir héldu
þeir reyndar áfram kennslu við HÍ en seta
Guðmundar Björnssonar fyrir miðri mynd
staðfestir stöðu hans sem forstöðumanns
Læknaskólans. Kennslugreinar þessara
manna eru birtar í myndatexta.
Námið í Læknaskólanum
Árni Árnason nefnir 19 síðustu nem-
endur skólans. Af þeim lauk einn námi
við lok skólans. Hinir luku allir námi við
læknadeild HÍ nema þrír sem ekki finnast
í Læknatali.
Í grein sinni lýsir Árni námi við
skólann allítarlega. Af 12 kennslubókum
sem hann telur upp voru 8 á þýsku, þrjár
á dönsku og ein á ensku. Verklegt nám
var frekar fábrotið. Nefnir Árni meðal
Síðustu kennarar Læknaskólans í Reykjavík
Fremri röð frá vinstri: Sæmundur Bjarnhéðinsson: lyfjafræði og námskeið um holdsveiki, Guðmundur Björnsson landlæknir: lyflæknisfræði og fæðingarhjálp,
Guðmundur Magnússon: handlæknisfræði, lífeðlisfræði og meinafræði. Aftari röð: Þórður Sveinsson: réttarlæknisfræði og námskeið um geðveiki, Andrés Fjeldsted: augnlækningar,
Guðmundur Hannesson: líffærafræði og heilbrigðisfræði, Vilhelm Bernhöft: námskeið í tannlækningum, Ásgeir Torfason: efnafræði.
Ljósmyndara er ekki getið en Inga Lára Baldvinsdóttir safnvörður Ljósmyndasafns Íslands giskar á Ólaf Magnússon (1889-1955).
Páll Ásmundsson