Læknablaðið - 01.11.2014, Síða 19
LÆKNAblaðið 2014/100 587
Inngangur
Algengt er að ungmenni undir 18 ára aldri stundi laun
aða vinnu samhliða skóla og vinna íslenskra ungmenna
er áberandi mikil, sérstaklega yfir sumartímann.1,2
Vinna ungmenna er sveigjanleg í þeirri merkingu að
vinnutíminn er gjarnan óreglulegur og þau skipta oft
um vinnu.1,2 Rannsóknir á vinnuslysum ungmenna eru
fáar1 en þó er ljóst að nokkur hluti ungmenna verður
fyrir vinnuslysum, að sum þeirra eru alvarleg og að
skurðir og brunasár eru algengir áverkar.26 Ungmenni
eru í meiri hættu á að lenda í vinnuslysum en þeir sem
eldri eru,79 eldri ungmennum er hins vegar hættara
við vinnuslysum en þeim yngri og strákum er hætt
ara við vinnuslysum en stelpum.7,10 Engu að síður sýna
rannsóknir að bæði aldur og kyn eru víkjandi þættir í
vinnuslysum ungmenna og að það eru fyrst og fremst
þættir tengdir vinnustaðnum sem segja fyrir um áhætt
una.10 Svo dæmi sé tekið sýndi bandarísk rannsókn
að upplifun starfsfólks af því að rekið væri á eftir því
í vinnu spáði fyrir um aukna slysahættu meðal ung
menna.11 Dönsk rannsókn leiddi í ljós að burður þungra
hluta, of mikið andlegt álag og skortur á stuðningi frá
stjórnanda voru þættir sem tvöfölduðu líkur á að ung
lingar slösuðust í vinnunni.8 Þá sýndi rannsókn meðal
norrænna ungmenna sem framkvæmd var í lok síðustu
aldar að íslensk ungmenni með reynslu af vinnu lentu
hlutfallslega ekki í fleiri vinnuslysum en norrænir jafn
1Félags- og mannvísinda-
deild Háskóla Íslands.
inngangur: Markmið rannsóknarinnar var að skoða vinnuslys 13-17 ára
ungmenna á Íslandi, orsakir þeirra og alvarleika. Í fyrsta lagi var athugað
hversu stór hluti ungmenna hefur slasast í vinnu, hve lengi þau hafa verið
fjarverandi frá vinnu vegna slyssins og hvernig vinnuslysin og alvarleiki
þeirra skiptist eftir aldri og kyni. Í öðru lagi voru tegundir áverka og helstu
slysavaldar skoðaðir. Í þriðja lagi voru alvarlegustu áverkarnir skoðaðir og
hvað olli þeim.
Efniviður og aðferðir: Spurningalisti var lagður fyrir 2000 manna slembi-
úrtak 13-17 ára ungmenna í Þjóðskrá árið 2008. Svarhlutfallið var 48,4%.
Spurt var í lokaðri spurningu hvort ungmennin hefðu orðið fyrir vinnuslysi
og um alvarleika slyssins en í opinni spurningu um áverka og slysavalda.
Kí-kvaðrat próf var notað til að reikna tölfræðilega marktækni og miðað
við 95% vikmörk.
niðurstöður: Fimmtungur ungmennanna hafði orðið fyrir vinnuslysi, fjórð-
ungur slasaðra var frá vinnu vegna slyssins, þar af 5,9% lengur en eina
viku. Hlutfall slasaðra hækkar með hækkandi aldri og er hlutfallið komið
í 30,7% við 17 ára aldur. Algengustu áverkar voru skurðir og tognun, en
bakáverkar og beinbrot höfðu í för með sér lengsta fjarveru frá vinnu. Beitt
áhald var algengasti slysavaldurinn en að bera eða taka hlut upp og fall
hlutar voru þeir slysavaldar sem ollu lengstri fjarveru.
Ályktun: Fjöldi ungmenna sem slasast við vinnu og alvarleiki sumra
slysanna vekur ugg.
Auk öryggisþjálfunar og fræðslu í vinnuvernd, þurfa framtíðarrann-
sóknir að skoða hvort staða ungmenna á vinnumarkaði ógni í reynd öryggi
þeirra og ef svo er, hvernig hægt sé að bæta þar úr.
ÁGRIp
Fyrirspurnir:
Margrét Einarsdóttir,
margrei@hi.is
Greinin barst
2. maí 2014,
samþykkt til birtingar
15. september 2014.
Engin hagsmunatengsl
gefin upp.
Vinnuslys ungmenna:
Orsakir og alvarleiki
Margrét Einarsdóttir1 félagsfræðingur, Guðbjörg Linda Rafnsdóttir1 félagsfræðingur, Jónína Einarsdóttir1 mannfræðingur
aldrar þeirra. Hins vegar ollu vinnuslys íslensku ung
mennanna fremur vinnutapi en gerðist annars staðar á
Norðurlöndunum.2
Lög sem kveða á um lágmarksaldur við vinnu og
um vinnuvernd ungmenna sem hafa náð tilskildum
lágmarksaldri voru sett í flestum Evrópulöndum fyrir
lok 19. aldar. Þá hafa verið ákvæði um lágmarksaldur
við vinnu og verndun ungmenna í sáttmálum Alþjóða
vinnumálastofnunarinnar (ILO) frá árinu 1919.12 Það var
hins vegar ekki fyrr en íslensk lög voru aðlöguð evr
ópskri reglugerð í lok 9. áratugar síðustu aldar að íslensk
löggjöf um vinnu aldurshópsins varð sambærileg því
sem gerðist í nágrannalöndunum.13 Rannsóknir sýna
engu að síður að vinna ungmenna á sér oft stað utan
við lög og reglur.2,14,15 Bandarískar rannsóknir benda
einnig til að öryggisþjálfun ungmenna á vinnustað sé
ábótavant.15, 16 Þá sýna rannsóknir að ungir starfsmenn
telja oft að staða sín á vinnustaðnum leyfi ekki að þau
láti í ljós áhyggjur af, eða vitneskju um, að öryggi þeirra
sé ábótavant.1720
Hérlendis er upplýsingar um vinnuslys að finna í
tveimur opinberum skrám, í slysaskrá Vinnueftirlitsins
og í Slysaskrá Íslands sem Embætti landlæknis hefur
umsjón með.21,22 Samkvæmt 79. gr. íslenskra vinnu
verndarlaga ber að tilkynna Vinnueftirlitinu ef starfs
maður verður óvinnufær í einn eða fleiri daga vegna
R a n n S Ó k n
Spiriva® Respimat® (tíótrópíum) og
Spiriva Respimat
(tíótrópíum)
Striverdi Respimat
(olodaterol)
Nýtt!
Nú fæ
st LA
BA
í Res
pima
t
Striverdi Respimat (olodaterol) er
langverkandi β2-örvi (LABA) í Respimat
Einu sinni á dag
– sem Spiriva Respimat (tíótrópíum)
Respimat innöndunartæki
– sem Spiriva Respimat (tíótrópíum)
Skammtur 5 μg (tvær úðanir, hvor um sig 2,5 μg)
– sem Spiriva Respimat (tíótrópíum)
Striverdi® Respimat (olodaterol)
TILVALIÐ SAMAN
IS
S
tr
-1
4-
01
-0
4
fe
b.
2
01
4
Ábending: Tíótrópíum er ætlað sem berkjuvíkkandi viðhaldsmeðferð
til að lina einkenni hjá sjúklingum með langvinna lungnateppu (LLT).
Ábending: Striverdi Respimat er ætlað sem berkjuvíkkandi
viðhaldsmeðferð hjá sjúklingum með langvinna lungnateppu (LLT).
®