Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.11.2014, Síða 39

Læknablaðið - 01.11.2014, Síða 39
LÆKNAblaðið 2014/100 607 Í T i l E F n i 1 0 0 Á R a Ó S l i T i n n a R Ú T G Á F U l æ k n a b l a ð S i n S Heilaskurðlæknarnir Bjarni Hannesson (1938­2013) og Krist­ inn Guðmundsson hófu störf við spítalann árið 1970 og sérstök heila­ og taugaskurðlækningadeild tók til starfa árið 1973 undir forystu þeirra. Áður þurfti að flytja sjúklinga með heilaæxli og önnur mein í heila og taugakerfinu til útlanda, einkum Kaup­ mannahafnar. Bjarni Jónsson (1909­1999) yfirlæknir á Landakots­ spítala hafði kynnt sér meðferð höfuðáverka á Ríkisspítalanum í Kaupmannahöfn og annaðist slíka sjúklinga eftir atvikum fyrir komu Bjarna og Kristins. Hjartadeild var lengi hluti lyflækningadeildar en varð síðar sjálfstæð eining. Þvagfæraskurðdeild var stofnuð, sömuleiðis bæklunarskurðlækningadeild, öldrunarlækningadeild og smit­ sjúkdómadeild. Læknar önnuðust speglanir á innri líffærum á sérstakri speglunardeild. Þar fengust nákvæmar sjúkdómsgrein­ ingar. Rekstur spítala krefst að sjálfsögðu samstarfs margra aðila og aðstaða verður að vera fullnægjandi. Í töflu þeirri sem hér fylgir er greint frá þessum þáttum, aðstöðu og starfsemi. Þess ber að geta að sumt sem þar er talið var ekki til staðar allan þann tíma sem hér um ræðir. Eitthvað kann að vera vantalið. Á sjúkradeildum var athvarf sjúklinga og hjúkrun þeirra og umönnun var umfangsmikil og mikilvæg. Á spítalanum störfuðu margir færir læknar sem önnuðust sjúkdómsgreiningar og meðferð hinna slösuðu ásamt samstarfsfólki sínu. Sjúkdómsgreiningar urðu nákvæmari og fljótari eftir því sem árin liðu með nýrri þekkingu og tækni. Meðferðarúrræði urðu fleiri og betri. Legutími styttist umtalsvert. Tölvuvæðing hófst smám saman og ruddi sér til rúms á flestum sviðum. Rannsóknadeild hafði þar nokkra forystu í samstarfi við Skýrsluvélar ríkisins. Öll rannsóknasvör bárust útprentuð sam­ dægurs sem þótti nýjung og var til mikils hægðarauka. Árið 1981 fékk spítalinn eigin tölvu og smám saman varð tölvunotkun al­ menn. Spítalinn rak nokkur útibú: Hjúkrunardeild í húsnæði Heilsu­ verndarstöðvarinnar, geðdeild og síðar öldrunardeild í húsi Hvíta­ bandsins við Skólavörðustíg, Arnarholt á Kjalarnesi þar sem rekin var langtímavistun fyrir geðsjúka, hjúkrunar­ og endurhæfingar­ deild í Hafnarbúðum við Reykjavíkurhöfn. Einnig lítil útibú við Eiríksgötu og við Kleifarveg. Nokkur samvinna var milli spítalanna í Reykjavík og sérstak­ lega má benda á samvinnu um bráðavaktir sem voru teknar upp til að jafna álag vegna bráðveikra sjúklinga sem leggja þurfti inn til meðferðar. Sjúkrarúm á spítalanum voru um 510 árið 1995, þar af tæp 300 í Fossvogi en rúmlega 200 á útibúum og dagdeildum. Þá voru stöðu­ gildi 1257 en í þeim voru miklu fleiri starfsmenn þar sem margir voru í hlutastöðum. Stjórn sjúkrastofnana Reykjavíkur (sem tók við af Sjúkrahús­ nefnd Reykjavíkur) var skipuð þremur fulltrúum sem kosnir voru af borgarstjórn og fulltrúar starfsmanna voru tveir. Fundi stjórnar sátu auk þess framkvæmdastjóri spítalans, hjúkrunarforstjóri og formaður læknaráðs. Boðleiðir innan spítalans voru stuttar og auðvelt reyndist að ná tali af yfirmönnum, sem gerði öll samskipti nánari og fljótvirkari. Rekstur spítalans var oft erfiður. Hann var lengi rekinn með daggjöldum þar sem greitt var fyrir hvern legudag. Hallarekstur var bættur með halladaggjöldum. Síðar var spítalinn rekinn með föstu framlagi sem ákveðið var í fjárlögum. Reyndist oft erfitt að reka spítalann réttu megin við strikið. Stundum var fyrirskipaður flatur niðurskurður á útgjöldum, þá náðu endar ekki saman í rekstrinum og þurfti að grípa til niðurskurðar, sparnaðar og fram­ lengdra sumarlokana sem oft reyndist erfitt. Af og til var skortur á starfsfólki, einkum hjúkrunarfræðingum. Vinnudeilur komu fyrir. Félag velunnara Borgarspítalans studdi starfsemi hans á ýmsan hátt. Í árslok 1986 var tilkynnt að hafnar væru viðræður milli borgaryfirvalda og ríkisins um yfirtöku þess á eignum og rekstri Borgarspítalans. Þetta olli miklu uppnámi meðal starfsfólks og urðu í kjölfarið fundahöld, fjölmiðlaumræða og stuðningsyfirlýsingar um málið. Ekki varð úr þessum áformum. Um allt þetta má lesa í ársskýrslum spítalans. Þar er greint frá rekstrartölum, fjármálum, sjúkdómsgreiningum, læknisaðgerð­ Apótek – lyfjaafgreiðsla Barnaheimili – leikskóli Barnalækningar Beinþéttnimælingar Blóðsjúkdómalækningar Bókasafn fyrir sjúklinga Bókasafn, læknisfræði Brjóstholsskurðlækningar Bæklunarskurðlækningar Dagdeildir Eldhús – matreiðsla – matsalur Endurhæfing Félagsráðgjöf Flutningastarfsemi Fræðsla heilbrigðisstétta Fæðingarheimili Fundarsalir, kennslustofur Geðlækningar Gjörgæsludeild Göngudeildir Handarskurðlækningar Háls-, nef- og eyrnalækningar Hárgreiðslu- og snyrtistofa Heila- og taugaskurðlækningar Hjartalínuritaþjónusta Hjartalækningar Hjúkrun og umönnun sjúklinga Hryggspengingar Húsvarsla – öryggismál Iðjuþjálfun Innkaup – birgðastöð Innkirtlasjúkdómalækningar Kvensjúkdómalækningar Legudeildir fyrir sjúklinga Lendingarpallur fyrir þyrlu Líkgeymsla Línafgreiðsla og starfsmannafatnaður Lungnalækningar Lyflækningar Læknaráð Læknaritarar og deildarritarar Meltingarsjúkdómalækningar Neyðarbíll Neyðarmótttaka vegna kynferðisofbeldis Næringarráðgjöf og sjúkrafæði Prestar – helgihald – sálgæsla Rannsóknir í blóðmeinafræði Rannsóknir í meinalífeðlisfræði Rannsóknir í meinefnafræði Rekstur, fjármál, launamál, starfsmannamál Ræsting húsnæðis Röntgenrannsóknir og myndgreining Saumastofa Sjúkraþjálfun Símaþjónusta – skiptiborð Skurðlækningar Skurðstofur Slysa- og bráðalækningar Smitsjúkdómalækningar Sótthreinsun – dauðhreinsun Speglanir innri líffæra Spítalapóstur – starfsmannablað Starfsmannaráð Sundlaug vegna endurhæfingar Súrefnis- og háþrýstilækningar Svæfingar og deyfingar Sýkingavarnir Sýklarannsóknir Talþjálfun Tann- og kjálkaskurðlækningar Taugasjúkdómalækningar Teiknistofa Tækjaeftirlit og viðgerðir Tæknideild Tölvudeild upplýsingamiðstöð vegna eitrana Vararafstöð Viðhald og endurnýjun fasteigna Fræðastörf og vísindastarfsemi Vöknunardeild fyrir aðgerðasjúklinga Þvagfæraskurðlækningar Þyrlusveit lækna Æðaskurðlækningar öldrunarlækningar Starfsemi og aðstaða á Borgarspítalanum

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.