Læknablaðið - 01.11.2014, Page 43
LÆKNAblaðið 2014/100 611
U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R
og hjúkrunarfræðingum og við vildum
gjarnan bæta úr því. Það hefur verið bætt
úr mönnun deildarlækna sem er til mikilla
bóta og nokkrir sérfræðilæknar hafa á
árinu komið til starfa sem lokið hafa sínu
sérnámi erlendis og er það okkur afar
mikilvægt. Það hefur þó í heildina heldur
fækkað stöðugildum sérfræðilækna þar
sem margir hafa minnkað starfshlutfall
sitt á spítalanum. Spítalinn er einfaldlega
í mjög erfiðri samkeppnisstöðu gagnvart
kjörum lækna erlendis og á einkastofum
hvað laun varðar. Í ákveðnum sérgreinum
er ástandið mjög alvarlegt og á það er rétti
lega bent í skýrslunni. Á vissum deildum
hefur einnig verið hægt að bæta úr mönn
un hjúkrunarfræðinga en í öðrum til
fellum hafa engir hjúkrunarfræðingar sótt
um auglýstar stöður. Þetta er eitt af því
sem við getum lítil áhrif haft á hér innan
sviðsins þar sem kjör lækna og hjúkrunar
fræðinga eru ákvörðuð af öðrum.”
Húsnæðismál Landspítalans hafa verið
í brennidepli um árabil og allir sammála
um að við núverandi ástand verði í raun
ekki búið. Þó bendir fátt til þess að lausn
sé í sjónmáli og áætlaður árlegur auka
kostnaður spítalans við rekstur margra
dreifðra eininga um höfuðborgarsvæðið er
talinn vera um þrír milljarðar. Miðað við
þá tölu myndi nýr spítali sem kostar 8090
milljarða borga sig upp á 2530 árum.
Meðal brýnustu aðgerða sem nauðsyn
legar eru að mati Embættis landlæknis er
að:
Hefja endurbyggingu og endurskipu
lagningu húsnæðis sviðsins.
• flytja alla starfsemi sviðsins á einn stað.
• fjölga einbýlum til að minnka sýkingar-
hættu og gera meðferð og umönnun
skilvirkari.
• bæta aðstöðu sjúklinga og aðstandenda.
• gera starfsaðstöðu fyrir starfsfólk sviðsins
aðlaðandi og eftirsóknarverða.
Hlíf segir þetta sannarlega rétt og eftir
sóknarvert en veruleikinn er allt annar.
„Starfsemi lyflækningasviðs fer fram
á mörgum stöðum á höfuðborgarsvæðinu
í dag og óhagræðið af þessu er augljóst
og kostnaður við flutninga sjúklinga
borgarhluta á milli er óheyrilega hár, að
ekki sé minnst á óþægindi fyrir sjúklinga
og aðstandendur og öryggi ef um mjög
veika sjúklinga er að ræða. Það er stöðugt
verið að flytja sjúklinga af bráðamóttöku
í Fossvogi yfir á Hringbraut þar sem
hjartagáttin er til húsa. Við þurfum að
manna tvær vaktalínur vegna þessa og
þannig mætti áfram telja. Þetta er alveg
gífurlega óhagkvæmt. Það er stöðugt verið
að reyna að leita lausna til að rýmka til
fyrir þá starfsemi sem snýr að þjónustu
við sjúklinga, til dæmis með því að færa
skrifstofur lækna spítalans yfir í gámahús
„Við erum stöðugt að leita lausna til að hagræða miðað við þær aðstæður sem við búum við en það leysir ekki vandann nema til bráðabirgða,” segir Hlíf Steingrímsdóttir fram-
kvæmdastjóri lyflækningasviðs Landspítalans.