Frjáls verslun - 01.07.2005, Blaðsíða 10
FRÉTTIR
10 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 5
PÉTUR
BJÖRNSSON
FIMMTUGUR
F
jöldi góðra gesta samfagnaði Pétri
Björnssyni, stjórnarformanni Ísfells, sem
hélt upp á fimmtugsafmæli sitt á dög-
unum. Meðal gesta voru margir úr vinahópi
Péturs, einnig ýmsir úr sjávarútveginum, en
afmælisbarnið hefur starfað á þeim vettvangi
alla sína tíð. Þá voru sumir gestanna einnig
tengdir Margréti Þorvaldsdóttur, eiginkonu
Péturs, sem einnig varð fimmtug í ár.
Komdu sæll og blessaður! Hjónin
Steinþór Skúlason, forstjóri SS, og
Hanna Pétursdóttir fótasérfræð-
ingur mæta í veisluna.
Pétur og Sigríður Snævarr sendiherra, en þau eru nágrannar í
Vesturbænum í Reykjavík.
Finnbogi Jónsson, fyrrverandi stjórnarformaður Samherja, á
skrafi við hjónin Steingrím J. Sigfússon alþingismann og Bergnýju
Marvinsdóttur konu hans. Steingrímur, sem flutti ræðu í afmælinu,
er gamall vinur Péturs og saman leika þeir blak reglulega.
Veislustjórinn. Benedikt Sveinsson,
fyrrum forstjóri ÍS, stýrði afmælis-
veislunni og hér sést hann ásamt
Sif Haraldsdóttur eiginkonu sinni.
Til vinstri er Árni M. Mathiesen
sjávarútvegsráðherra.