Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2005, Síða 33

Frjáls verslun - 01.07.2005, Síða 33
F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 5 33 D A G B Ó K I N VERÐIÐ, 66,7 MILLJARÐAR? Hæsta til- boðið í Símann, tilboð Skiptis upp á 66,7 milljarða, var hærra en flestir höfðu reiknað með. Fyrirfram var langoftast rætt um að til- boðin í Símann myndu vera einhvers staðar á bilinu 50 til 60 milljarðar. Tilboð Skiptis reyndist svo afgerandi hæst, að ekki fór á milli mála að þar voru menn að tryggja sig. Síðustu mánuðina fyrir útboðið var jafnan talað um að baráttan um Símann kæmi til með að standa á milli bræðranna í Bakka- vör og Björgólfs Thors Björgólfssonar. Sú varð líka raunin. Það vakti athygli að ekkert þeirra erlendu félaga, sem lögðu fram óbind- andi tilboð fyrr í sumar, voru með bindandi tilboð þegar til kastanna kom. OF HÁTT VERÐ? Þegar tilboðið í Símann lá fyrir, 66,7 milljarðar, sögðu margir að þetta verð væri hreinlega of hátt - svo mikil áhætta væri samfara þessum kaupum. Áhættan felst líklegast mest í því að ýmsar tækninýjungar í tengslum við Netið geri símtöl ódýrari og dragi úr tekjum símafélaga. Hins vegar býður Netið líka upp á ýmsa nýja möguleika fyrir símafélög. En var tilboð Skiptis of hátt? Það á eftir að koma í ljós. Hlutabréfamarkaðurinn er í toppi um þessar mundir. Við verðmat á fyrirtækjum er best að horfa á afkomuna. Nýjustu afkomutölur Símans voru birtar föstudaginn 26. ágúst sl. þar sem fram kom að hagnaður Símans fyrstu sex mánuðina hefði verið 2,2 milljarðar miðað við um 1,2 milljarða á sama tíma í fyrra. Verði hagnaður Símans á öllu árinu um 4,4 milljarðar þýðir söluverðið 66,7 millj- arðar að V/H hlutfallið í kaupunum er 15,1 sem telst nokkuð lágt. Þá hefur stundum verið rætt um ein- hverja þumalputtareglu (ekki veit ég hvaðan hún er komin) sem segir að EBITA marg- földuð með 9 gefi góða mynd af verðmæti fyrirtækja. EBITA Símans var 3,5 milljarðar fyrstu sex mánuðina. Verði hún 7 milljarðar á öllu árinu gefur það verðmat upp á 63 milljarða. Í HVAÐ FARA SÍMA-PENINGARNIR? Auðvitað eru allir farnir að rífast um það hvernig best sé að eyða peningunum sem fengust fyrir Símann. „Greiða niður skuldir“, segja hagfræðingar til að létta frekar á vaxtabyrði ríkissjóðs. Aðrir vilja Sundabraut og hátæknisjúkrahús. Það var einmitt Davíð Oddsson utanríkisráðherra sem fyrstur kom með hugmyndina um að setja féð í eitt stórt nýtískulegt hátæknisjúkrahús. Það verður vafalaust lítill vandi að eyða þessu fé, ekki satt? 2. ágúst Friðrik kaupir TM Software Um leið og til- kynnt var um uppstokkunina á Burðarási og sameiningu Burðaráss og Straums var tilkynnt að Frið- rik Jóhannsson, forstjóri félags- ins, væri að hætta, enda hefði hann keypt meirihluta (52,3%) í TM Software af Burðarási og Brú Venture Capital og ætlaði að einbeita sér að því fyrirtæki. TM Software er hugbúnaðarfyrirtæki og hét áður Tölvumyndir. Friðrik tekur þar sæti sem stjórnarfor- maður. Nafni hans Sigurðsson er forstjóri félagsins. Saman eiga þeir tveir um 69% hlutafjárins. 4. ágúst Nýr forstjóri Dagsbrúnar Það fór fyrir brjóstið á mörgum þegar sagt var frá skipulagsbreyt- ingum í kringum Og Vodafone og að Eiríkur S. Jóhannsson tæki við forstjórastöðu nýs móðurfélags Og Vodafone sem héti Dagsbrún. Það var auð- vitað nafnið Dagsbrún sem menn stöldruðu við. Fannst sumum sem óþarfi væri að koma með þetta nafn þar sem Dagsbrún væri fyrst og fremst í hugum þjóðarinnar Verkamannafélagið Dagsbrún. Einhver spurði: Verður Eiríkur formaður Dagsbrúnar, eins og Guðmundur Joð og Ebbi á Litlu-Brekku? Fjarskiptarekstur Dagsbrúnar verður undir heit- inu Og Vodafone og þar hefur Árni Pétur Jónsson verið ráðinn forstjóri. Fjölmiðlarekstur Dags- brúnar verður undir heitinu 365 miðlar og þar er Gunnar Smári Egilsson forstjóri. 4. ágúst Danskir og sænskir takast á í Össuri Stærstu hluthafarnir í Össuri hafa aukið hluti sína í fyrirtækinu að undanförnu - svo að eftir hefur verið tekið. Þetta byrjaði á því að 4. ágúst jók danska fjárfestinga- félagið William Demant Invest Jón Sveinsson, formaður einkavæðinganefndar, og Erlendur Hjaltason, framkvæmdastjóri Exista, takast í hendur þegar niðurstaðan í útboðinu lá fyrir og að Skipti væri með hæsta tilboðið. Friðrik Jóhanns- son, stjórnar- formaður TM Software. Eiríkur S. Jóhannsson, forstjóri Dags- brúnar.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.