Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.2006, Side 10

Frjáls verslun - 01.08.2006, Side 10
10 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 6 fjötraður af fortíð að mér finnst þessi nafnbót ennþá mæla fjölda þeirra stórfyrirtækja sem viðkomandi er stjórnarformaður í – líkt og var í tilviki Halldórs H. Jónssonar. En einnig finnst mér það vega talsvert þungt hve oft viðkomandi er í forsvari fyrir fyrirtækið í almennri umræðu. Með öðrum orðum; ég skilgreini nafnbótina stjórnarformann Íslands hvorki sem auðugasta né valdamesta mann viðskiptalífsins – og dreg í efa að hægt sé að leggja mat á gæði stjórn- arstarfa hans öðru vísi en að horfa til árangurs fyrirtækjanna sem hann gegnir formennsku í. En hvað er þá stjórnarformannsins og hvað forstjórans í árangrinum? ÞAÐ GÓÐA VIÐ þessi nýju verðlaun er að þau vekja upp umræðu um hlutverk og ábyrgð stjórnarmanna og stjórnarformanna. Eitthvað segir mér að menn leggi engan veginn sama skilning í nafngiftina „stjórnarformaður Íslands“ og fyrir hvað hún standi. Skömmu áður en verðlaunin voru veitt var eitt dagblaðanna með könnun á því hver væri stjórnarformaður Íslands og þar vann Björgólfur Thor Björgólfsson yfirburðasigur. Hann var talinn besti stjórnar- formaðurinn. Fyrir um hálfu ári varð mikil umræða um það í fjölmiðlum að Skarphéðinn Berg Steinarsson, stjórnarformaður FL Group, væri í svo mörgum stjórnum að hann væri orðinn eins konar stjórnarformaður Íslands. EN HVERT ER þá hlutverk stjórna og stjórnar formanna? Það hefur hingað til verið skilgreint þannig að hlutverk stjórna sé að ráða forstjóra, meta frammistöðu hans reglulega, hafa eftirlit með honum og veita honum ráðgjöf við að móta stefnuna. Ennfremur að hafa eftirlit með því að sett markmið náist, gæta hagsmuna allra hluthafa og taka ákvarðanir um stórar skuldbindingar, eins og kaup á nýjum fyrirtækjum og stórar lántökur. Í seinni tíð hefur mjög oft borið á umræðum um að eftirlitsskylda stjórnar gagnvart forstjór- anum sé eitt veigamesta verkefni hverrar stjórnar og að það sé því óheppilegt að menn séu „starfandi stjórnarformenn“. Eiga þeir að hafa eftirlit með sjálfum sér? Ég held líka að góður stjórnarformaður leysi ósætti við aðra stjórnarmenn á bak við tjöldin og áður en að þau komast í óleysanlegan hnút á stjórnarfundum. AF ÞESSU MÁ ráða að flest af því sem stjórnarmenn gera er ekki beint sýnilegt og því getur verið mjög erfitt að taka afstöðu til gæða stjórnarstarfanna – og hvað þá að velja stjórnarformann Íslands. Umræðan, sem fylgir verðlaununum, er hins vegar þess virði að rétt er að veita þau. Jón G. Hauksson ÉG MINNIST ÞESS að þegar kolkrabbinn var og hét, var Hall- dór H. Jónsson, stjórnarformaður Eimskipafélags Íslands, kallaður stjórnarformaður Íslands. Þessi nafngift festist við hann vegna þess að hann var formaður stjórna í nokkrum stórfyrirtækjum og var talinn hafa alla þræði í viðskiptalífinu í hendi sér. Ég held þó að flestir hafi metið það svo að þessi nafngift væri til komin vegna fjölda stjórna sem Halldór sat í frekar en þau miklu völd sem hann var talinn hafa. Það voru sérstaklega andstæðingar Halldórs og kol- krabbans sem kölluðu hann stjórnarformann Íslands og oftast var hann nefndur þetta í háði. ÞESS VEGNA VARÐ mér hugsað til Halldórs fyrr í haust þegar sagt var frá því að til stæði að veita ný verðlaun í viðskipta- lífinu – og sem hétu því gamalkunna nafni „stjórnar formaður Íslands“. Að þessu sinni var ekkert háð í gangi og var þess sérstaklega getið að Norðmaður ætti hugmyndina að verðlaunum, Gunnar Eckbo, ritstjóri Board News í Noregi. Gunnar þessi hefur haft veg og vanda af vali á stjórnar formanni ársins í Noregi, en þar hafa þessi verðlaun verið veitt fimm sinnum. TILEFNI VERÐLAUNANNA – stjórnarfor- maður Íslands – er það sama og í tilviki annarra verðlauna af svipuðum toga. Það er að vekja athygli á því sem vel er gert og að hvetja aðra til dáða. Þó var haft sérstakt orð á því að verðlaunin væru til að skapa umræðu og vekja athygli á mikil vægi og gæðum stjórnarstarfa og að stuðla að bættu viðskiptasiðferði. ÞAÐ VAR GUNNLAUGUR Sævar Gunnlaugsson, stjórnar- formaður TM, sem hlaut verðlaunin – og verð ég síðastur manna til að setja út á það. En ég staldra hins vegar við þá spurningu hvernig árangur stjórnarformanna er mældur. Er til einhver önnur mælistika en að líta á árangur þeirra fyrirtækja þar sem þeir gegna stjórnarformennsku? Er árangur stjórnarformanna mældur á annan hátt en þegar horft er til árangurs forstjóra og frumkvöðla? Svo virð- ist vera vegna þess að verðlaunin eru tengd við gæði stjórnarstarfa og eru persónubundin. En getur hugsast að gæði stjórnarstarfa séu framúrskarandi þótt fyrirtækið nái ekki mjög góðum árangri í rekstri? Eða öfugt; að stjórnarstörf séu losaraleg og ómarkviss, en fyrirtækið nái samt mjög góðum árangri og sýni góða afkomu? ÞAÐ ER ATHYGLISVERT að stjórnarformaður Íslands var valinn í könnun sem gerð var á meðal framkvæmdastjóra og stjórn- armanna á Íslandi. Ekki veit ég hvaða mælistiku þeir notuðu við valið eða hvernig þeir skilgreindu verðlaunin. Ég er líklegast enn svo NÝ VERÐLAUN: Stjórnarformaður Íslands Það voru sérstaklega andstæðingar Halldórs H. Jónssonar og kolkrabbans sem kölluðu hann stjórnarformann Íslands og oftast var hann nefndur þetta í háði. RITSTJÓRNARGREIN
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210
Side 211
Side 212
Side 213
Side 214
Side 215
Side 216
Side 217
Side 218
Side 219
Side 220
Side 221
Side 222
Side 223
Side 224
Side 225
Side 226
Side 227
Side 228
Side 229
Side 230
Side 231
Side 232

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.