Frjáls verslun - 01.08.2006, Page 142
KYNNING142 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 6
Starfsemi Securitas á sviði öryggismála er fjöl-
breytt og alltaf að aukast. Nýjasta viðbótin
er vopnaleit á Keflavíkurflugvelli og eru á
annan tug starfsmanna Securitas að störfum
þar. Auk þess sér Securitas um öll bílastæði
við flugvöllinn. Þá er Securitas með mannaða
öryggis gæslu við álverið á Reyðar firði.
Trausti Harðarson, forstöðumaður mark-
aðs- og sölusviðs, segir að árið hjá Securitas
hafi verið mjög viðburðarríkt: „Auk nýjunga
sem komið hafa sem viðbót við starfsemina
þá höfum við þrefaldað söluna á einstakl-
ingsmarkaðinum og tvöfaldað söluna á fyrir-
tækjamarkaðinum. Markaðs- og sölustarf Sec-
uritas hefur verið áberandi og viðamikið þetta
árið og hefur starfsemin aukist í samræmi
við það og fyrirtækið er enn meira áberandi í
þjóðfélaginu en áður.“
Securitas þjónar öllu landinu og eru
starfsstöðvar, auk Reykjavíkur, á Akureyri,
Austurlandi, Vesturlandi, í Reykjanesbæ og
á Suðurlandi. Rekin er samræmd stjórnstöð
með Neyðarlínunni. Sá tími, sem sparast
vegna þessarar samvinnu í viðbrögðum vegna
neyðarboða, brunaboða og innbrotaboða,
hefur oft skipt sköpum fyrir viðskiptavini
Securitas.
Traustar varnir
Þjónusta Securitas nær til allra þátta öryggis-
mála fyrirtækja og heimila. Fyrirtækið býður
allar tegundir af öryggisgæslu og öryggis-
tæknibúnaði.
Heimavörn Securitas er fullkomið öryggis-
kerfi sem vaktar heimilið allan sólarhringinn.
Þægilegt viðmót, auk möguleika á fjarstýr-
ingu, gerir kerfið mjög einfalt í notkun fyrir
SECURITAS:
MARKMIÐIÐ AÐ AUKA ÖRYGGI
VIÐSKIPTAVINA OKKAR
Í aldarfjórðung hefur Securitas
verið í forystu öryggismála á
Íslandi. Fyrirtækið var stofnað
árið 1979 og voru fyrstu verk-
efnin öryggisgæsla fyrir
ýmsa aðila í Smiðjuhverfinu
í Kópavogi. Í dag þjónar
Securitas um 12 þúsund við-
skiptavinum, þar af flestum af
stærstu fyrirtækjum landsins.
Starfsmenn Securitas eru á
fjórða hundrað og veltan
í ár stefnir í að vera
2 milljarðar króna.
Trausti
Harðarson,
forstöðumaður
markaðs-
og sölusviðs
Securitas.