Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.2006, Side 206

Frjáls verslun - 01.08.2006, Side 206
206 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 6 Stjórnendur lesa Vi›skiptabla›i› Allir Lesa reglulega www.vb.is Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands ger›i könnun um lestur vi›skiptabla›a me›al stjórnenda íslenskra fyrirtækja. Augl‡singasími: 511 66 22 38% 25% 69% 47% Viðskiptablaðið Morgunblaðið Viðskipti Fréttablaðið Markaðurinn 66% 45% M I C H A E L E . P O R T E R skólum víðs vegar um heiminn. Stofnun M.E. Porters hefur boðið þessum skólum til samstarfsins og í tilefni af heimsókn Porters til Íslands hefur viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands verið boðið að vera þátttak- andi í þessu samstarfi. Michael E. Porter er eftirsóttur ráðgjafi og hann þjónar bæði fyrirtækjum og stjórn- völdum víða um heim. Porter er einn af stofnendum ráðgjafafyrirtækisins Monitor og á vefsetri fyrirtækisins má finna skýrslur eftir hann. Meðal þeirra fyrirtækja sem Porter hefur starfað fyrir eru Caterpillar, DuPont, Procter & Gamble og Royal Dutch Shell. Hann hefur einnig starfað fyrir mörg fylki í Bandaríkjunum og fyrir alríkisstjórn- ina. Jafnframt hefur hann leiðbeint stjórn- endum margra ríkja og verið í forystu fyrir stefnumótunarvinnu á sviði hagstjórnar og efnahagsmála í fjölmörgum ríkjum. M.E. Porter hefur fengið mikinn fjölda viðurkenninga fyrir störf sín og framlag. Hann hefur verið sæmdur heiðursdoktors- nafnbót við fjölmarga háskóla víða um heim. Vegna framlags Porters til fræðasamfélagsins og viðskiptalífsins og í tilefni af því vægi, sem kenningar hans hafa haft í kennslu í viðskiptafræði hér á landi, var Porter sæmdur heiðursdoktorsnafnbót frá viðskipta- og hag- fræðideild Háskóla Íslands meðan á heim- sókn hans til landsins stóð, 2. október síðast- liðinn (sjá umfjöllun bls.24). Prófessor Porter dró fram vísbendingar um hita og þenslu í hagkerfinu og benti sérstaklega á að laun virtust hærri en ætla mætti m.v. framleiðni viðskiptalífsins. Michael E. Porter kom til Íslands 2. október sl. á vegum Capacent ráðgjafafyrirtækisins. Megintilefni heimsóknarinnar var að kynna rannsókn á samkeppnishæfni Íslands, sem unnin var af Michael Porter og aðstoðarmönnum hans. Porter flutti tvo fyrirlestra. Fyrri fyrirlesturinn fjallaði um samkeppnishæfni Íslands og sá seinni um stefnu fyrirtækja. Hér verður gerð stutt grein fyrir fyrri fyrirlestrinum. Samkeppnishæfni Íslands Porter hóf fyrir- lesturinn á því að ræða um verðmætasköpun og framleiðni í samfélaginu. Framleiðnin endurspeglar nýtingu framleiðsluþáttanna sem notaðir eru í framleiðslu á vörum og þjónustu. Framleiðnin ræður mestu um lífskjörin í landinu. Það sem þjóðir keppa um er að skapa bestu skilyrðin til að ná sem mestri framleiðni í atvinnulífinu. Þessi skil- yrði eru nauðsynleg en þó ekki nægileg til að árangur sé tryggður. Til viðbótar veltur árangurinn á því hversu heilbrigð sam- keppnin er milli fyrirtækja og hversu fær fyrirtækin eru í því að skapa sér stöðu og ná árangri hvert á sínu sviði. Til að útlista þetta fór Porter í gegnum „demantinn“ sinn og tók dæmi um atvinnugreinar og klasa- myndun, m.a. í Noregi. Porter lagði sérstaka áherslu á að þróun í efnahagslífi þjóðar verður að byggjast á sam- virkni milli allra aðila í þjóðfélaginu á öllum stigum. Hið opinbera verður að taka þátt en það verða fyrirtæki, mennta- og rannsóknar- stofnanir og félagasamtök að gera líka. Varðandi Ísland gerði Porter að umtals- efni staðsetningu landsins, auðlindir þess og mannfjölda. Hann sagði að samkeppn- ishæfni landsins væri góð en vissulega væru ýmis sérkenni sem hefðu áhrif á raunmynd- ina. Hann átti við atriði eins og kaupmátt tekna, framleiðni vinnuaflsins, þátttöku á vinnumarkaði og vinnutímann sem stæði að baki þjóðarframleiðslunni. Fram kom varðandi þessa þætti að hér á landi væri verk að vinna. Porter sýndi ráðstefnugestum áhugaverða mynd af klösum í atvinnulífinu og benti á að þróunin væri um margt jákvæð. Hann vék að takmörkuðum fjárfestingum erlendra aðila hér á landi og einnig mjög mikilli fjárfestingu innlendra aðila hér á landi sem gæti haft neikvæð áhrif á framleiðnina. Hann gerði einnig grein fyrir stöðu landsins m.t.t. fenginna einkaleyfa í Bandaríkjunum í samanburði við önnur lönd. Úttektin sýndi að þróunin er framávið í samanburð- inum. Porter dró fram vísbendingar um hita og þenslu í hagkerfinu og benti sérstaklega á að laun virtust hærri en ætla mætti m.v. framleiðni viðskiptalífsins. Porter lagði einnig út af könnuninni á samkeppnishæfni þjóðarinnar (Global Competitiveness Report 2006-2007), sem framkvæmd er af Iðntæknistofnun fyrir hönd World Economic Forum, þar sem Porter er í forsæti. Hann benti sérstaklega á þá fjölmörgu þætti sem skýrslan sýnir að eru að draga samkeppnishæfni þjóðarinnar niður. Porter gerði einnig að umtalsefni stórauknar fjárfestingar Íslendinga erlendis og benti á að ef Íslendingar hefðu þekkingu fram að færa að heiman til að ná árangri í þessum fjárfestingum þá væri það dæmi um samkeppnishæfni þjóðarinnar. Jafn- framt kom fram að sú reynsla sem fæst með starfseminni erlendis geti verið mikilvægur þáttur í þróun og uppbyggingu atvinnulífs- ins heima fyrir. Í lokaorðum sagði prófessor Porter að Íslendingar ættu að halda áfram að upp- færa og bæta grundvöllinn og skilyrðin sem atvinnulífið byggir á. Að Íslendingar ættu að PORTER Á ÍSLANDI
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210
Side 211
Side 212
Side 213
Side 214
Side 215
Side 216
Side 217
Side 218
Side 219
Side 220
Side 221
Side 222
Side 223
Side 224
Side 225
Side 226
Side 227
Side 228
Side 229
Side 230
Side 231
Side 232

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.