Ægir

Volume

Ægir - 01.09.2001, Page 8

Ægir - 01.09.2001, Page 8
8 F R É T T I R Tvö rótgróin fyrirtæki, sem í gegnum tíðina hafa bæði verið að þjónusta sjávarútveginn, hafa sameinað krafta sína undir nafninu Poulsen. Þetta eru fyrirtæk- in Á. Bjarnason ehf. og Vald Poulsen. Jafnframt hef- ur Poulsen flutt starfsemi sína frá Suðurlandsbraut 8 í Reykjavík í Skeifuna 2, þar sem Bílanaust og Fjöðr- in voru til húsa. „Þessi sameining tók gildi síðastliðið sumar,“ segir Ásþór Guðmundsson, sölu- og innkaupastjóri hjá Poulsen. „Þarna er verið að sameina krafta tveggja ágætra fyrirtækja. Á.Bjarnason var sterkt fyrirtæki í dreifingu á smurolíum og smurtækni almennt. Vald Poulsen er hins vegar rótgróið fyrirtæki í „vélabrans- anum“, selur legur, drifbúnað og ýmislegt í þeim dúr. Sameining þessara tveggja fyrirtækja fellur vel saman og það verður mjög sterkt þjónustufyrirtæki við atvinnulífið,“ segir Ásþór. Í tengslum við sameiningu fyrirtækjanna fór Ás- geir Bjarnason, stofnandi Á. Bjarnason, að starfa und- ir merkjum Poulsen og mun hann eftir sem áður halda sínum viðskiptasamböndum og sinna þörfum og óskum viðskiptavina Á. Bjarnason. Sameining Á. Bjarnason og Vald Poulsen tók gildi síðastliðið sumar. Á þessari mynd eru Ásgeir Bjarnason og Reynir Matthíasson, framkvæmdastjóri Poulsen. Á. Bjarnason og Vald Poulsen hafa sameinað krafta sína M yn d: S ve rr ir J ón ss on .

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.