Ægir - 01.09.2001, Side 23
23
V E S T M A N N A E Y J A R
„Aðstaðan sem við höfum hér er
til bráðabirgða, en það er verið að
vinna að því að koma allri starf-
seminni fyrir á einum stað,“ segir
Ingvar Karlsson, verkstjóri, en
hann flutti með fyrirtækinu til
Vestmannaeyja þegar það hóf
starfsemi þar sl. sumar.
Flutning Íslenskra matvæla til
Eyja bar nokkuð brátt að. Tíu
dögum eftir eldsvoðann í Hafnar-
firði hófu Íslensk matvæli að
framleiða á öðru húsnæði í Hafn-
arfirði, enda þurfti að standa við
gerða sölusamninga. Þann 1. júlí
seldi síðan eigandi Íslenskra mat-
væla, Pharmaco hf., fyrirtækið til
Vestmannaeyja, kaupandi var
Eignarhaldsfélag Vestmannaeyja,
en að því standa Byggðastofnun,
Lífeyrissjóður Vestmannaeyja,
Sparisjóður Vestmannaeyja, Skelj-
ungur, Tryggingamiðstöðin og
Ísfélag Vestmannaeyja og sömu-
leiðis á Pharmaco áfram lítinn
hlut í félaginu.
Um miðjan júlí var byrjað að
flytja tækjabúnað til Vestmanna-
eyja og framleiðslan hófst þann
24. júlí á nýjum stað.
Á innanlandsmarkað og
til útflutnings
Til að byrja með hefur verið farið
rólega af stað, en ætla má að kraft-
urinn muni aukast í starfseminni
þegar frá líður og síldarvinnslan
verður líka komin í fullan gang,
en það sem af er hefur eingöngu
verið pakkað reyktum laxi í Eyj-
um. Laxinn er reyktur í Hafnar-
firði og hann fluttur daglega í
körum til Vestmannaeyja til
pökkunar. Þar er fiskurinn roð-
flettur, hann skorinn niður, pakk-
að í lofttæmdar umbúðir og fryst-
ur. Afköstin eru á bilinu 700 kg
til 1,5 tonn á dag, meðaltalsaf-
köstin eru um eitt tonn á dag.
Hráefnið er fengið að mestu
leyti frá fyrirtækinu Silungi í
Vatnsleysu á Reykjanesi, en
einnig lítillega frá Silfurstjörn-
unni í Öxarfirði. Reyktur lax er
eins og kunnugt er nokkuð dýr
vara og eftirsótt. Íslensk matvæli
hafa bæði framleitt þessa vöru fyr-
ir innanlandsmarkað og Banda-
ríkjamarkað.
Lax og síld
Þorsteinn Sverrisson, stjórnarfor-
maður Íslenskra matvæla, segir að
stefnt sé að því að allur fram-
leiðsluhluti fyrirtækisins verði
kominn til Eyja fljótlega eftir ára-
mót, sem þýðir að þá verður búið
að setja upp reykofna og allan
annan tækjabúnað sem þarf fyrir
þessa framleiðslu.
Fyrir brunann í Hafnarfirði
störfuðu um þrjátíu manns hjá Ís-
lenskum matvælum í Hafnarfirði,
en nú eru tólf stöðugildi í pökkun
á laxinum í Eyjum og fjórir til
fimm starfsmenn bætast við þegar
síldarvinnslan verður þar komin í
fullan gang. Síldarvinnslan hefur
ekki síður verið mikilvægur þátt-
ur í rekstri Íslenskra matvæla, en
fyrirtækið hefur marinerað síld og
selt ellefu mismunandi tegundir.
Toppurinn í síldarvinnslunni er
áberandi mestur á síðustu mánuð-
um ársins vegna mikillar sölu á
svokallaðri jóla- og þorrasíld.
Þrátt fyrir að framleiðsluhluti
Íslenskra matvæla og skrifstofu-
hald verði sett upp í Vestmanna-
eyjum er gert ráð fyrir að fyrir-
tækið verði áfram með sölu- og
markaðsstarf á höfuðborgarsvæð-
inu.
Nú eru um tólf stöðugildi hjá Íslenskum matvælum í
Vestmannaeyjum, en þeim á væntanlega eftir að fjölga þegar
allur framleiðsluferillinn verður kominn til Eyja.
Starfsemi Íslenskra matvæla flutt til Vestmannaeyja:
Hjólin farin að snúast í Eyjum
Eins og fólk rekur minni til varð fyrirtækið Ís-
lensk matvæli í Hafnarfirði eldi að bráð þann
27. apríl síðastliðinn. Allt brann sem brunnið
gat. Í kjölfar brunans þróuðust mál þannig að
fyrirtækið var selt til Vestmannaeyja og þar er
nú hafin framleiðsla af fullum krafti. Ægir leit
við hjá Íslenskum matvælum í Eyjum.
Hér er verið að skera laxaflökin eftir kúnstarinnar reglum.
M
yn
di
r:
Ó
sk
ar
Þ
ór
H
al
ld
ór
ss
on
.