Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.2001, Síða 35

Ægir - 01.09.2001, Síða 35
35 N E T A G E R Ð kaupstað hjá Vélaverkstæði G. Skúlason hf. Aðstaðan hjá okkur í dag er betri en almennt gerist og við erum eitt af fáum netaverk- stæðum á landinu sem getur tek- ið á móti veiðarfærum beint úr skipunum,“ segir Jón Einar. Sameining norður í land Árið 1999 sameinuðust Netagerð Friðriks Vilhjálmssonar hf. og Nótastöðin Oddi hf. á Akureyri og í september á síðasta ári keypti fyrirtækið Netagerð Dalvíkur ehf. Fljótlega kom þó í ljós að verkefn- in á Dalvík þóttu ekki nægjanleg til að standa undir rekstrinum þar og því var starfsemin lögð niður í september s.l. og viðskiptavinum þjónað frá Akureyri. Við samein- inguna urðu mikil umskipti í allri starfsemi fyrirtækisins og til varð mun öflugra fyrirtæki með breið- ari rekstrargrundvöll, auk þess sem markaðssvæðið stækkaði til muna. Ekki var þó látið staðar numið, því til að auka fjölbreytnina og tryggja rekstrargrundvöllinn enn frekar keypti fyrirtækið Gúmmí- bátaþjónustu Austurlands í des- ember síðastliðnum, sem starf- rækt hafði verið í Neskaupstað um langt árabil. „Við fluttum þá starfsemi hingað í húsnæði Neta- gerðarinnar en gúmmíbátavið- gerðir og netagerð fara vel saman og viðskiptavinirnir að stórum hluta þeir sömu,“ segir Jón Einar. Fyrirtækið er nú í eigu fjórtán hluthafa, en eignarhlutur Jóns Einars og Síldarvinnslunnar hf. er þar langstærstur. Lögð verður áhersla á að styrkja starfsemina á norðursvæðinu enn frekar og nýta stærð fyrirtækisins til frekari sóknar. Í dag eru starfsmennirnir átján talsins, sex á Akureyri og tólf í Neskaupstað þaðan sem fyr- irtækinu er stjórnað. Alhliða veiðarfæra- þjónusta Viðskiptavinir Netagerðarinnar eru skip og útgerðir af öllu land- inu og er fyrirtækið með starfs- stöðvar á tveimur mikilvægum svæðum, þ.e. Akureyri og Nes- kaupstað. Veitt er alhliða veiðar- færaþjónusta á báðum stöðum, þó með misjöfnum áherslum sem mótast af þeim veiðisvæðum sem eru nálægt starfsstöðvunum. Uppsjávarveiðin fer að stórum hluta fram undan Austurlandi og því er stærri hluti starfseminnar í Neskaupstað tengdur framleiðslu og viðgerðum á nótum, flottroll- um og flottrollspokum. Stærri hluti starfseminnar á Akureyri tengist hinsvegar botnveiðarfær- um, fiskitrollum og rækjutroll- um. Verkefnin eru að sama skapi árstíðabundin og fara talsvert eft- ir því hvaða vertíð er í gangi hverju sinni. „Við getum í dag veitt alla þjónustu sem við kemur veiðar- færum og eigum ávallt á lager allt til veiðanna sem skiptir höfuð- máli. Sömuleiðis getum við geymt nætur og troll fyrir skip- in,“ segir Jón Einar. Aukin verkefni framundan „Velta síðastliðins árs var minni en árin þar á undan vegna að- stæðna í sjávarútvegi, þar sem lágt afurðaverð uppsjávararfurða og hátt olíuverð hafði mest að segja. Einnig hefur sumar- og Nótastöðin Oddi á Akureyri sameinaðist Netagerð Friðriks Vilhjálmssonar fyrir tveimur árum. Á Akureyri eru sex starfsmenn hjá fyrirtækinu og þar af eru þrír á meðfylgjandi mynd. Frá vinstri: Axel Valgeirsson og feðgarnir Karl Helgason og Helgi Sigfússon. M yn di r: Ó sk ar Þ ór H al ld ór ss on . Þrír vaskir starfsmenn Netagerðar Friðriks Vilhjálmssonar. Frá vinstri: Jón Sigurðsson, Ari Sigurjónsson og Steindór Björnsson.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.