Ægir

Volume

Ægir - 01.09.2001, Page 39

Ægir - 01.09.2001, Page 39
39 T Ó N L I S T gerði ráð fyrir í upphafi. Hins vegar er þetta búið að vera alveg óskaplega gaman,“ sagði Björn Valur og gat ekki neitað því að menn hefðu velt fyrir sér að gefa út annan disk. „Við erum komnir með efni á annan disk, en við sjáum hvernig þessi gengur. En hvernig sem gengur að selja diskinn, þá er alveg ljóst að við munum keppast við að veita hver öðr- um gullplötur fyrir mikla sölu,“ sagði Björn Valur og hló. „Stefnan er sú að selja diskinn ódýrt. Við ætluðum okkur aldrei að hagnast á þessu uppátæki. Markmiðið var og er að ná inn fyrir kostnaði. Við verðum ódýrari en Bubbi.“ Útgáfuhátíð í nóvember Gert er ráð fyrir að nýi diskurinn komi út um miðj- an nóvember og þá er stefnt að útgáfuhátíð. Við það er miðað að Kleifabergið verði í landi um miðjan mánuðinn og tækifærið verður notað til þess að fagna útgáfu disksins. „Við stefnum að því að verða með útgáfutónleika bæði í Ólafsfirði og á Siglufirði enda eru skipverjar á Kleifaberginu frá báðum þess- um stöðum. Við verðum ef að líkum lætur fjóra daga í landi og auðvitað er maður til í að fórna landlegunni fyrir frægðina,“ sagði stýrimaðurinn tónvissi á Kleifaberginu ÓF, Björn Valur Gíslason. Þótt tónlistin eigi allan huga Kleifabergsmanna er aðalatvinna þeirra í því fólgin að draga björg í bú. Og það hafa þeir gert skuldlaust því óhætt er að segja að vel hafi gengið á Kleifaberginu. Til marks um það var aflaverðmæti í síðasta túr skipsins um hundrað millj- ónir króna. Músíkalskir sjómenn gera það sem sagt líka gott! 2002 2 ISBN-9979-942-71-1 Tryggðu gæðin ... FCV-1200 dýptarmælirinngengur með öllum gerðum botnstykkja Hólmaslóð 4 - Reykjavík - Sími 561 0160 2002 2 ISBN-9979-942-71-1 Tryggðu gæðin ... SC-60 og SC-120gervitunglaáttavitarnir frá FURUNO Hólmaslóð 4 - Reykjavík - Sími 561 0160 . . . hraðinn kemur mest á óvart Magnús tónlistarstjóri á kafi í tökkum í hljóðverinu. Skipverjarnir á Kleifaberginu ÓF-2 syngja bakraddir sem mest þeir mega.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.