Ægir - 01.09.2001, Side 44
44
N Ý S M Í Ð I
Guðrún Gísladóttir er 71,30 metr-
ar að lengd, en lengd milli lóðlína
er 63,60 metrar. Breidd skipsins er
14 metrar. Að öðru dekki er dýpt
skipsins 5,8 metrar en dýpt að
fyrsta dekki er 9,65 metrar. Í skip-
inu, sem hefur 7,5 metra djúp-
ristu, eru níu lestarrými eða kæli-
tankar og eru átta þeirra útbúnir
með RSW/CSW kælikerfi, fjórir
þeirra eru einnig frystilestar og eitt
lestarrýmið er aðeins með fryst-
ingu. Frystirými í skipinu er sam-
tals 1500 rúmmetrar.
Skipið var smíðað samkvæmt
klassa Det Norske Veritas
DnV+1A1 Fishing Vessel, EOS,
Ice Class C og samkvæmt kröfum
Siglingastofnunar.
Ánægður skipstjóri
Tveir skipstjórar koma til með að
standa vaktina í brúnni á Guð-
rúnu Gísladóttur KE-15, annars
vegar Sturla Einarsson, þaulvanur
skipstjórnarmaður sem var skip-
stjóri hjá Samherja um árabil, og
hins vegar Halldór Jónasson, fyrr-
verandi skipstjóri og stýrimaður á
Sveini Benediktssyni SU og þar
áður Snæfugli SU. Halldór Jónas-
son sagði í samtali við Ægi að
ekki væri hægt að segja annað en
að skipið væri mjög glæsilegt og
öflugt. „Mér líst mjög vel á skip-
ið, það er bæði stórt og öflugt.
Skipið er stærra en það í fljótu
bragði virðist vera. Það er geysi-
lega öflug vél í skipinu, tvær
flottromlur og stór og sterk spil,
tækjabúnaðurinn er allur mjög
öflugur og fullkominn,“ sagði
Halldór. Hann sagðist vænta þess
að unnt verði að fara í tvo túra fyr-
ir jól, en ljóst sé að töluverðan
tíma taki að læra á skipið og
„slípa hlutina til“.
Guðrún Gísladóttir er ein-
göngu búin til veiða á uppsjávar-
fiski, síld, loðnu og kolmunna, og
mun skipið til að byrja með fara á
síldveiðar - flaka og frysta síld.
„Við erum með mjög fullkomin
frystitæki um borð, þau eru al-
sjálfvirk. Þetta er auðvitað mikil
bylting,“ sagði Halldór og bætti
við að á skipi með svo mikla af-
kastagetu væri ekki hægt að bjóða
mannskapnum upp á að beita
handafli við að lemja afurðirnar úr
pönnunum.
Á þriðja hundrað um-
sóknir um skipspláss
Því verður ekki á móti mælt að
margir sóttust eftir skipsplássi á
Guðrúnu Gísladóttur. Halldór
Líst mjög vel á þetta skip
- segir Halldór Jónasson, annar tveggja skipstjóra á Guðrúnu Gísladóttur KE-15
Guðrún Gísladóttir KE-15, 2626 brúttólesta tog- og nótaskip, var smíðuð
í Guangzhou Huangpu skipasmíðastöðinni í Suður-Kína. Umboðsaðili
stöðvarinnar hér á landi er Ísbú ehf. Skipatækni ehf. hannaði skipið,
sem er gert út af Útgerðarfélaginu Festi ehf., en auk Guðrúnar gerir Festi
út tvö önnur skip til veiða á uppsjávarfiski, Þórshamar GK og Örn KE.
Guðrún Gísladóttir er óhemju öflugt skip, hvernig sem á það er litið. Níu lestar eru í skipinu og eru sjókælikerfi í átta þeirra.
Burðargeta skipsins fyrir hráefni til bræðslu er um 2.500 tonn.
Myndir: Sverrir Jónsson.