Ægir - 01.06.2005, Síða 31
31
B Á TA - O G S K I PA S A G A N
Núverandi eigendur Húna II,
Þorvaldur Skaftason og Erna Sig-
urbjörnsdóttur, hafa lyft
Grettistaki í endurbótum og
varðveislu skipsins og hreinlega
forðað því að það yrði eldi eða
einhverjum öðrum eyðingaröflum
að bráð. En nú er hugsanlega
komið að kaflaskilum í sögu
Húna II. Áhugamenn á Akureyri
hafa verið að vinna að því að skip-
ið verði í framtíðinni staðsett á
Akureyri og verði þannig tákn-
rænn minnisvarði um skipasmíð-
ar á Akureyri og sjósókn fyrri
tíma.
Sjósettur árið 1963
Húni II var smíðaður í Skipa-
smíðastöð KEA á Akureyri á ár-
unum 1962 og 1963 fyrir Hákon
Magnússon, skipstjóra á Skaga-
strönd, og Björn Pálsson, fyrrver-
andi alþingismann og bónda á
Löngumýri. Skipasmíðastöð KEA
var stofnuð árið 1940 og leiddi
Gunnar Jónsson, skipasmíða-
meistari, starf hennar fyrstu árin
ásamt fjölda hagleiksmanna.
Smíði Snæfellsins EA var stærsta
smíði Skipasmíðastöðvar KEA, en
næststærsta skipið sem stöðin
smíðaði var einmitt Húni II.
Húni II er 130 tonna eikarbát-
ur, 27,48 metra langur, 6,36
metra breiður og 3,37 metra
djúpur. Skipið var afhent árið
1963.
Aðalvél Húna var Stork 450
hestöfl. Mikið var lagt í smíðina á
sínum tíma, m.a. var notuð sér-
staklega valin amerísk eik í smíð-
ina. Tvö astik síldarleitartæki
voru í bátnum sem þótti bylting
á þeim tíma.
Kaupverð bátsins mun hafa
verið í kringum 12 milljónir
króna. Til gamans má geta þess
að á sama tíma var verið að flytja
inn frá A-Þýskalandi 250 tonna
stálskip sem kostuðu 11,5 millj-
ónir. Sagan segir að tveir tuttugu
tonna bátar hafi verið smíðaðir úr
afgöngunum úr eikinni sem
keypt var í Húna II.
Eftir nokkurra ára útgerð
nyrðra seldu þeir Björn og Hákon
Menningarverðmætum
forðað frá eyðingaröflum
Fyrir 42 árum síðan var sjósett á Akureyri nýtt og glæsilegt skip, Húni
II. Skipið var smíðað í Skipasmíðastöð KEA og þótti og þykir enn sér-
lega glæsileg smíði. Húni II þjónaði lengi og vel sem fiskiskip, en síð-
ustu árin hefur hann verið skráður sem skemmtibátur og gerður út á
hvalaskoðun, sjóstangaveiði og aðra skylda ferðaþjónustu.
s
a
b
b
e
V
Húni II við Torfu-
nefsbryggju á
Akureyri.
aegirjuni2005 1.7.2005 18:04 Page 31