Ægir

Årgang

Ægir - 01.06.2005, Side 32

Ægir - 01.06.2005, Side 32
bátinn til Hornafjarðar árið 1970 þar sem hann hlaut nafnið Haukafell SF 11. Eftir 1990 kom hann aftur til Skagastrandar á vegum Hólaness hf. og hét þá Gauti HU 59. Síðan eignaðist Skagstrendingur hf. bátinn, en seldi hann til Hornafjarðar þar sem hann hlaut nafnið Sigurður Lárusson SF 110. Húni var síðan tekinn af skipaskrá árið 1994, en þá hafði hann borið að landi 32 þúsund tonn af sjávarfangi. Hann kom aftur á skipaskrá árið 1996 sem skemmtibáturinn Húni II HU 2 í eigu Þorvaldar Skaftason- ar og Ernu Sigurbjörnsdóttur, sem fyrr segir, og þau hafa gert hann út síðan. Greiddi tíu krónur fyrir Húna Frá því um miðjan júní sl. hefur Húni II verið við Torfunefs- bryggjuna á Akureyri. Glæsilegt skip í alla staði og ber vitni vönd- uðu handverki í Skipasmíðastöð KEA forðum daga. Tíðindamaður Ægis hitti þau hjónin, Þorvald og Ernu, um borð í Húna II og sett- ist niður með Þorvaldi og spurði hann fyrst hvernig það hafi komið til að þau hjónin eignuðust Húna II. „Það kom þannig til að eftir að hann var keyptur frá Hornafirði til Skagastrandar eftir 1990 fór ég að gefa honum auga, vegna þess að ég hafði veitt því athygli að gömlu trébátarnir voru einn af öðrum að hverfa. Ég kom þeim skilaboðum til manns sem hafði með bátinn að gera að ef til stæði að úrelda hann, þá vildi ég fá að vita af því. Ég fékk hins vegar of seint að vita af því hvað til stæði með Húna, því áður en ég vissi af var búið að taka úr honum vélina og ýmis tæki, sem mér fannst miður því ég hafði hugsað mér að kaupa bátinn með gömlu vélinni í og tækjum og tólum. Sannast sagna var báturinn ein drullu- hrúga framúr og afturúr, þegar ég keypti hann fyrir tíu krónur og tók við honum á Seyðisfirði. Það var strax ljóst að mín biði mikil og strembin vinna, en hvað mest var þrautagangan varðandi það að koma skipinu inn á skipaskrá aft- ur hjá Siglingamálastofnun. Það var í raun gert ráð fyrir því að slíkum bátum ætti að eyða, þeir máttu ekki að vera til. Mig minn- ir að það hafi tekið mig tvö ár að fá bátinn aftur skráðan inn sem skemmtibát. Það kom yfir mig strax þessi hugsun að þessi bátur mætti ekki eyðileggjast, hér væri á ferðinni menningarverðmæti sem yrðu að varðveitast. Síðustu eigendur höfðu gert samning um að eyða bátnum og það átti að kosta tvær milljónir króna.“ Vönduð smíði „Ég sparaði eigendunum því þessar tvær milljónir með því að greiða tíu krónur fyrir bátinn. Ég fékk Landhelgisgæsluna til þess að draga Húna fyrir mig vestur á Skagaströnd og þar var ég með hann í um eitt ár. Það héldu allir að ég væri orðinn ruglaður að ætla mér að fara í að gera þennan ónýta bát upp. Ég fór síðan suður til Reykjavíkur með bátinn og hellti mér út í það árið 1996 að gera hann upp. Ég átti trillu og úrelti hana og notaði andvirðið í þetta dæmi,“ segir Þorvaldur og játar því að hann hafi alla tíð starfað sem sjómaður og því hafi hann haft miklar tilfinningar til hérlendrar bátasögu. „Ég hafði lengi fylgst með Húna og vissi allt um hans sögu og einnig hafði ég kafað töluvert ofan í sögu gamalla báta á Íslandi. Ég var alveg með það á hreinu að sá bátur sem ætti að varðveita með þessum hætti yrði að vera ís- lenskur og Húni uppfyllir þau skilyrði, auk þess sem hann er smíðaður á Akureyri, en bátarnir sem Akureyringar smíðuðu á þessum árum voru mjög vel látnir Þessir „gæslumenn“ um borð í Húna minna gesti á gömlu, góðu síldarárin. 32 B Á TA - O G S K I PA S A G A N Húni II nýsmíðaður - en honum var hleypt af stokkunum árið 1963. aegirjuni2005 1.7.2005 18:04 Page 32

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.