Tímarit Máls og menningar - 01.11.1950, Qupperneq 32
190
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
bréf til allra góðra manna í Skálholtsbiskupsdæmi þess efnis, að hann
vildi styrkja heilaga Skálholtskirkju með ráðum og dáð, eftir því sem
hann mætti bezt gera að lögum og því legátavaldi heilagrar Róma-
kirkju, sem veitti honum í vígslunni fullmakt að dispensera yfir öllu
Islandi „um allar causas papales“. Um alþingistímann hélt Jón almenna
prestastefnu í Skálholti, og var þar kosinn Sigvarður Halldórsson ábóti
í Þykkvabæ til biskups. í kjörbréfinu segjast klerkar vænta staðfesting-
ar konungs á kosningunni og heita að styðja hann, Noregskrúnu og
Noregsríkisráð að réttum Noregslögum, eftir því sem þeir hafi frekast
afl til og megi og geti.
Það virðist undarlega vanhugsað af Jóni Arasyni og klerkum hans
að senda Sigvarð ábóta til Danmerkur. Hver átti að vígja hann þar, og
hvernig gat þeim dottið í hug, að konungur samþykkti kosningu hans?
Að vísu stendur í bréfi Jóns til Sunnlendinga, að heygbornasti herra
kóngurinn hafi sent honum og klerkum hans innsiglað, opið verndar-
bréf. Það er næstum því óhugsandi, að Kristján III. hafi sent honum
slíkt bréf, en aftur á móti hefur hann getað fengið verndarbréf frá
Friðriki I. Á öllum Norðurlöndum var einungis einn maður, sem gat
vígt Sigvarð rómverskri vígslu, og þessi maður var Jón Arason sjálfur.
Hvers vegna hann gerði það ekki, er með öllu ókunnugt. Af fyrr nefndu
bréfi er auðséð, að honum hefur verið fullkunnugt um þær embættis-
skyldur, sem breytt viðhorf lögðu honum á herðar. Sending Sigvarðs
ábóta til Danmerkur virðist hraparleg skyssa, sérstaklega hafi Jón
Arason einhvern tíma fengið verndarbréf frá Kristjáni III.
Þótt Lútherstrú stæði ekki djúpum rótum í Skálholtsbiskupsdæmi,
höfðu ýmsir ríkismenn stiftisins tekið sinnaskiptum. Þeir fylktu sér um
Martein Einarsson prest á Staðarstað sem biskupsefni. Pétur, bróðir
hans, hafði verið í þjónustu Dana og kunni nokkuð til hernaðar, en
Daði Guðmundsson í Snóksdal átti systur þeirra bræðra. Marteinn fór
þegar utan, er hann var kjörinn til biskups, og hlaut vígslu. Meðan hann
var utan, önnuðust Árni Arnórsson í Hítardal, Jón Bjarnason, ráðs-
maður í Skálholti, Pétur og Daði forstöðu biskupsdæmisins. Sigvarður
fól aftur á móti Jóni Arasyni umboð yfir biskupsstólnum af sinni hálfu.