Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1950, Page 40

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1950, Page 40
198 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR Orms Sturlusonar að Sauðafelli í Dölum 2. okt. um haustið. Þegar að stefnudegi kom, hélt Jón þangað með 90 manns. Þeir feðgar settust í bú Daða að Sauðafelli, en Ari gerði tilkall til þeirrar jarðar. Menn greinir á um það, hverra erinda þeir hafi farið í Dalina. Páll E. Ölason telur, að þeir hafi farið til þess að hlýða dómi Orms um Sauðafell og lækka rostann í Daða án þess að hafa í hyggju að taka hann höndum og þess vegna hafi þeir farið svo fáliðaðir. Daði treysti ekki dómi Orms, svila Ara, og hélt því að Sauðafelli með allmiklu liði, þegar að stefnudegi kom. Hann vildi, að málin væru lögð til alþingis, en ekkert samkomulag náðist, og rauf þá Daði þinghelgi og kirkjugrið á þeim feðgum, og bað sína menn ganga að þeim í fjandans nafni, eins og hann kemst sjálfur að orði í skýrslu sinni um fundinn. Nokkrar rysk- ingar urðu milli flokkanna í kirkjugarðinum, en Norðlendingar voru ofurliði bornir, og lét Daði „hafa hönd á biskup Jóni og hans sonum, Birni og Ara, og nokkrum mönnum með, lærðum og leikum. Hélt ég þeim í varðhaldi til föstudagsins. Lét ég þá þeirra menn lausa, en oft nefndan biskup Jón og hans sonu, Björn og Ara, hafði ég í haldi í þrjár vikur og tvo daga betur, og það þykist ég gert hafa upp á trú og holl- ustu við minn náðugasta herra konung, eftir þeim bréfum, sem hans herradómur hefur innsent í landið þrjú sumur forliðin. Lét ég þar með þessa þrjá menn lausa með 12 manna dómi, tillagi og sam- þykki Orms Sturlusonar, sem segir sig lögmann vera. Sagði ég þá úr minni ábyrgð með vottum. Eftir það tók Kristján skrifari, kóngsins umboðsmann, þá í sína vakt, eftir þeirn dómi, sem þar um var gerður, og aldrei komu þeir í mína varðveizlu né minna manna, upp frá því þeir riðu af hlaðinu í Snóksdal, sem mörgum dandismönnum er vel kunnugt og eg trúi mér munu vitni að verða, ef þörf gerist.“ Þetta er niðurlag skýrslu Daða um fundinn 2. október 1550 á Sauðafelli. Margs konar heimildir eru til um þennan fund bæði í bundnu og óbundnu máli, þar á meðal er skýrsla Orms lögmanns Sturlusonar. Sú skýrsla er allhvassyrt í garð Daða, en hann kúgaði Orm síðar til þess að kveða upp dóm, þar sem hann úrskurðar Jón biskup og syni hans rétt fangaða og Daða að öllu saklausan kóngdómsins vegna, þar eð hann hafi einungis framkvæmt skipan konungs. Kristjáni skrifara var falið að taka við þeim feðgum og varðveita þá til næsta Öxarárþings með aðstoð beggja lögmanna og Marteins Skálholtsbiskups.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.