Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1950, Page 74

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1950, Page 74
232 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR ég ekki svarað því írekar en spurningu um, hver hefði kennt mér ör- nefnin í kringum bæinn. Minningin um tarfinn hans Bjarna í Við- borðsseli var einn hlutinn af andrúmsloftinu á heimilinu, þegar ég var að alast upp. Nú var heimilið mitt raunverulega gamla heimilið hennar ömmu, sem gengið hafði í hendur elzta þálifandi syni hennar, en mér er ekki grunlaust um að hann hafi lengi búið við minjar mikilla byrða, sem lögðust á herðar honum við mannskaða þessa misseris. En það er svo grandvart, að ég heyrði nokkru sinni talað um þá á þessu heimili öðru- vísi en sem nauðsynlega umgerð um andvarpið út af tarfinum hans Bjarna í Viðborðsseli. 2 Þegar við Islendingar komum saman nú á tímum og lyftum sál okkar til gleði á vængjunr söngsins, þar sem allir taka undir, þá er nokkurn veginn fastur liður í þeim söng: „En ef við sjáum sólskinsblett í heiði, að setjast allir þar og gleðja oss.“ En fyrir rúmri öld var þetta ekki sungið, þá hafði Jónas Hallgrímsson ekki ort þennan söng, og þá átti þjóðin heldur ekki neinn hljómgrunn fyrir þennan söng og því ekki skilyrði til að eignast hann. Eftir margra alda myrkur er það ekki fyrr en á 19. öld, að íslenzk þjóð þekkir til sólskinsbletta í lífi sínu. Og það er heldur engin tilviljun, að söngur þessi verður til meðal ungra náms- manna handan íslandsála, til þeirra komu fyrstu sólskinsstundirnar, þeir höfðu skynjað anda hins sæla suðurs og vissu, að leið hans lá í norður- átt, og Jónas bað hann fyrir kveðju til fósturjarðarinnar. Höfuðgildi þessa söngs er fólgið í hagrænni lífsspeki. Ekkert var langþjáðri þjóð nauðsynlegra í baráttunni til hærri menningar á efna- hagslegu og andlegu sviði en nýtni á fyrstu sólskinsstundirnar, sem lífið bauð, að njóta þeirra fullkomlega og láta þær varpa ljóma inn á 'lönd framtíðarinnar. Minning um sólskinsstund er aflgjafi á sigling- unni í gegnum næsta kólgubakka. í því liggur skýring þess, hve líf margra mótlætisbarna er hamingjuþrungið, þau hafa ekki vanrækt að njóta þeirra sólskinsstunda, sem boðizt hafa, og teyga úr þeim allt það yndi, sem þær hafa átt, og varðveitt minninguna um þær sem óþrjót- andi varasjóð. Heilræðið að setjast að hverjum sólskinsbletti og gleðja sig hefur verið ómetanlegt hjálpartæki í baráttu íslenzku þjóðarinnar til hækkandi menningar í eitt hundrað ár. Eins augnabliks sólskins-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.