Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1950, Page 77

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1950, Page 77
HARMKÍMIN ÞJÓÐ 235 sem afmarkað hugtak, þá gætum við heldur aldrei tekið okkur í munn orð eins og þjóðarsál eða þjóðarmetnaður. Eg tel það óþarft að láta bíða seinni tíma úrskurð um það, að ekki hafi einn einasti atburður í sögu þjóðarinnar verkað eins djúpt og kremjandi á sál þjóðarinnar í einni svipan og atburðirnir í vetur. Svo heil var þjóðin í viðbragði, að ekki einn einasti Islendingur á frónskri grund kennir svo mikið sem ávænings af sigurvímu, þegar mjög harð- vítug orusta hefur verið háð til stundarúrslita. og þeir, sem í mest- um djöfulmóði höfðu barizt fyrir þeim úrslitum, urðu þrúgaðastir allra manna af tilfinningu þess að hafa beðið óskaplegan ósigur. Það er ekki nóg að hafa slitið sig úr öllum tengslum við andlegt líf þjóðar sinnar, það er ekki nóg að hafa þegið fé til höfuðs henni, það er ekki nóg að ganga heils hugar með yfirspenntum kröftum til fjörráða við hana, það er ekki hægt að losna við að vera hluti af henni. Þjóðarsál er meira en rétt aðeins orð, þjóðarsál er staðreynd, sem ekki lætur að sér hæða. Og hvernig brást þjóðin við? Þið skuluð ekki þegar líta á það sem vanhugsað tómyrði: hana setti hljóða. Ég gæti hugsað, að Reykvíking- ar teldu þetta fjarstæðu. Ég hafði nokkurt samband við Reykvíkinga að atburðum afstöðnum. Og þeir sögðu mikið og margt. En þeir ræddu minnst um þungamiðju þess, sem hafði gerzt, þeir ræddu um atburði, sem gerzt höfðu í sambandi við þá þungamiðju. Þeir minntust ekki fyrst og fremst á það, sem þyngst lá á huganum, heldur fólskufáránlega tilburði á útjöðrum hins örlagaríka kjarna. En utan Reykjavíkur, þar sem skyldleikinn er meiri við aðstöðu þjóðarinnar um liðnar aldir, þar ríkti hinn dýpsti hljóðleiki, sem ég hef þekkt um mál, sem snart hvern mann og var hávaðamál í daglegum blaðarekstri. Jafnvel menn, sem undanfarna daga höfðu aldrei komizt svo í kallfæri við náungann, að þeir ekki æptu á framkvæmd þeirra úr- slita, sem nú voru fengin, þeir drúptu nú höfði og höfðu ekkert um- ræðuefni tiltækilegra en veðrið eða blessun þess, að tekizt hafði að ljúka Krýsuvíkurveginum í tæka tíð. Þeir voru nú sérstaklega fíknir í að tala um eitthvað til að hlaða varnargarð um þetta eina, sem dýpst var í vitund hvers einasta Islendings. En eftir lítinn tíma hafa allir íslendingar sameinazt í dunandi hlátri. Skoplegu drættirnir létu ekki bíða eftir sér, þegar metin í vesaldómi
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.