Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1950, Side 141

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1950, Side 141
UMSAGNIR UM BÆKUR 299 skilja, að skapgerð Þorgils Þrándarson- ar'eigi sér enga hliðstæðu í heimi veru- leika og bókmennta. Þorgils Þrándarson gæti að sumu leyti verið Staðarhóls-Páll afturgenginn, og Hallfríður Þórsmörk minnir á einum stað á Onnu frá Stóru- Borg hjá Jóni Trausta. Aðalpersónur sögunnar: Þorgils Þrándarson, Hallfríð- ur Þórsmörk, Elín Torfadóttir og bræð- urnir, Angantýr og Geir, eru annars furðu einsteyptar og líkar hver annarri. Einkenni þeirra er: lífsþróttur, óstýri- læti og skjótræði — þær þurfa aldrei að hugsa sig um —, jafnvel sýslumaðurinn líkist þessu fólki í hikleysi og skjótum ákvörðunum. Það er annars mestur gall- inn, að þær skuli vera svona líkar Elín Torfadóttir og Hallfríður Þórsmörk, því að þær eru þeir pólar, sem segull sög- unnar sveiflast á milli, og einhvernveg- inn finnst mér, að höfundur ætlist ekki til, að þær séu líkar að uppruna og eðli. Eiríkur í Byrgi er ólíkur þessuni per- sónum. Idann er trúr umhverfi sínu, enda langsannasta persónan. Hann leikur af alúð hlutverk sitt sem sýslumannsþræll og sendimaður höfðingjanna: „Þetta grasstrá í mannsmynd, sem stigið hafði verið ofan á. Því að grasið er gras og það er auðvelt að traðka það niður, en því lægra sem það er og óásjálegra, því oftar getur það rétt sig við aftur.“ Sagan er heilsteypt frá hendi höfund- arins. Eitt leiðir af öðru, og allt fer eins og höfundurinn ætlast til. Lesandinn þarf lítt að staldra við í lestrinum til að hugsa. Sagan leysir ekkert vandamál, enda vafalaust ekki ætlað það. Hún er fyrst og fremst hressandi skemmtilestur, og þó er hún ekki gamansaga, en ég spái því, að fáir komist við af örlögum aðal- persónanna. Stíll sögunnar er hraður og hispurs- laus, mál yfirleitt gott, þó að sitthvað mætti hefla betur. Prófarkalestur mætti vera betri, og er þó vandséð, hvort hon- um er einum um að kenna. Höfundur og prófarkalesari virðast hafa mikið dálæti á y, t. d. er ritað jrylla á öllum þeim sex stöðum, sem það orð kemur fyrir í bók- inni, og finnst mér þó, að þeir, sem það orð nota svo örlátlega, ættu að kannast við orðið friðill og einnig minnast orða Hávamála, að „Svo er friður kvenna, þeirra er flátt hyggja, sem aki jó óbryddum á ísi hálum“. Helgi J. Halldórsson. LEIÐRÉTTING I grein Oskars B. Bjarnasonar „Líffræðikenningar í Ráðstjórnarríkj- unum bls. 95, 17.—18. 1. a. o., stendur: „stikilsber á stærð við venju- legan grape-ávöxt", í stað: stilcilsber á stœrð við vínþrúgur.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.