Tímarit Máls og menningar - 01.05.1951, Page 3
TIMARIT
MÁLS OG MEMNINGAR
RITSTJÓRAR
Kristinn E. Andrésson og Jakob Benediktsson
Maí 1951 12. árgaiigur 2. hefti
Ójufnt höfunist við uð
I sumar eru hundrað ár liðin síðan þjóðkjörnir fulltrúar Islendinga risu í fyrsta
sinn upp til einarðlegra og samhuga andmæla gegn ásælni erlends valds á þjóð-
fundinum 1851. Þá gerðust um leið þau nýstárlegu tíðindi að erlent herlið var
sett hér á land til þess að veita fulltrúum erlendra stjómarvalda brautargengi ef í
odda skærist og skjóta íslendingum skelk í bringu. Ekki þarf að rekja þá sögu
hvernig þjóðfundurinn og landsmenn allir snerust við þeim gestum. Sú var þá
gifta Islendinga að einhugur þeirra var meiri en svo að erlendri stjórn þætti svara
kostnaði að beita þá hörðu.
En nú, á því herrans ári 1951, gengur hér erlendur her á land, ekki fáeinir dát-
ar smáríkis, vopnaðir framhlaðningum, heldur deildir úr öllum hertegundum eins
mesta herveldis veraldar, sjálfsagt búnar stórvirkustu drápstækjum nútímans. Og
þessi her kemur hér í boði og þökk innlendrar ríkisstjórnar, eða að minnsta kosti
með fullu samþykki hennar, og með uppáskrift þingmanna úr svo nefndum lýð-
ræðisflokkum. Island er gert að herstöð í fremstu víglínu erlends stórveldis, ör-
yggismál þess og landvarnir lögð undir mat og ákvarðanir erlends herráðs sem
vitanlega miðar aðgerðir sínar við hagsmuni síns eigin lands, sinnar eigin stjóm-
ar, áður en um það sé spurt hvað Islendingum henti.
I þetta sinn var hér enginn þjóðfundur. Alþingi var ekki einu sinni kvatt sam-
an, heldur talað við þingmenn í pukri. Hér átti ekki að gefa neinum kost á að
standa upp og mótmæla í nafni þjóðarinnar, þess skyldi vandlega gætt að lands-
lýður fengi ekkert að vita fyrr en allt væri um garð gengið, samningur undirskrif-
aður, her korninn á land. Ur því að í skömmina er komið, er það ef til vill ekki
mikið atriði að þannig séu hundsaðar reglur og venjur þingræðis og lýðræðis ein-
mitt af þeim stjórnmálaflokkum sem ákafast bera þessi orð í munni. En þó er að-
ferðin táknræn um tvennt: bæði um þann ótta við almenningsálitið sem virðist
hafa heltekið þessa menn og eins um hitt hverja virðingu þeir bera fyrir Alþingi
íslendinga og þeim lögum og reglum sem það hefur sett.
Okkur er sagt að þessi nýja herseta sé rökrétt og óhjákvæmileg afleiðing af
þátttöku íslands í Atlantshafsbandalaginu. En þegar sá samningur var á döfinni
var því hátíðlega lýst yfir af formælendum hans að herstöðvar á íslandi kæmu