Tímarit Máls og menningar - 01.05.1951, Qupperneq 26
144
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
ir, Suður-Kóreu 20—21 milljón. Samkvæmt samhljóða fregnum hafði
Norður-Kórea stofnað her til verndar landinu í febrúar 1949, og í stríðs-
byrjun taldi þessi her um 75 þús. manna. Herstyrkur Suður-Kóreu var
að minnsta kosti 100 þús. manna, búinn hergögnum frá Bandaríkjunum
og þjálfaður af bandarískum liðsforingjum. Auk þess var í Suður-Kóreu
50—60 þús. manna vopnaö lögreglulið, skipulagt og þjálfað til hernaðar.
Var það kannski kanínan, sem réðst á refinn?
Hinn vestræni heimur staðhæfir, að her Norður-Kóreumanna hafi
þann 25. júní hafið tilefnislausa árásarstyrjöld. Norður-Kóreumenn
hafa aftur á móti staðhæft, að suðurherinn hafi þennan morgun hafið
sókn á breiðri víglínu norður fyrir 38. breiddarbaug. Og þá fyrst hafi
norðurherinn fengið skipun um að stöðva sóknina og veita fjandmönn-
unum eftirför suður á bóginn.
Hér stendur staðhæfing gegn staðhæfingu. Og á vesturhveli jarðar
hefur önnur staðhæfingin verið hafin upp í helgiljóma algers sann-
leika, hin hefur ekki verið virt viðlits.
Norður-Kórea hefur enga áheyrn hlotið hjá þeim, sem ráða almenn-
ingsálitinu í hinum vestræna heimi. Henni hefur ekkert tækifæri gefizt
til þess að túlka mál sitt og leggja fram sín sönnunargögn. Er það ekki
nokkuÖ einkennilegt fyrirbæri á valdaskeiði hinna sameinuðu, sem
eiga sér það meginhlutverk að vaka yfir öryggi þjóða, vernda heims-
friðinn og fullnægja öllu réttlæti? Engin hlutlaus rannsóknarnefnd
hefur verið skipuð. Það var Harry Truman, sem skar úr því upp á
eigiÖ eindæmi, hvor væri sekur og hvor saklaus, og hóf styrjöld gegn
Norður-Kóreu formálalaust. Þar á eftir komu svo samþykktir alls-
herjarþingsins eins og á sjálfvirku færibandi. Sniðugt og einfalt óneit-
anlega — helzti einfalt til að vera tvímælalaust sannfærandi.
í stríð verður ekki rokið á svipstundu, fyrirvaralaust. Til þess þarf
undirbúning. Verklegan undirbúning vissulega, en engu síður hugræn-
an. Hvar dafnaði nú árásarhugarfarið? í norðri eða suöri? Það er
engan veginn þýðingarlítið atriði. Og myndi ekki Syngman Rhee og
handlangarar hans vera býsna þung samvizkubyrði hinum árásar-
hneykslaða meirihluta Sameinuðu þjóðanna — sem heyr nú styrjöld
í nafni friðarins? Því það eru staðreyndirnar og sönnunargögnin, sem
gilda — ekki æpandi fyrirsagnir heimsblaðanna. Ekki feluleikurinn
heldur — né þagnarlygin.