Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1951, Qupperneq 65

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1951, Qupperneq 65
ÆVI MITSJÚRINS 183 um boðið að kaupa tilraunastöð hans og jurtasafn. Mitsjúrin neitaði öllum þess- um glæsilegu boðum. Hugsjón hans var sú að alþýða hans eigin lands skyldi njóta ávaxtanna af starfi hans. Þegar bolsévíkar komust til valda með októberbyltingunni árið 1917 urðu fljótt umskipti til hins betra í ævi Mitsjúrins. Hann fagnaði byltingunni allshugar sem óumflýjanlegri sögulegri nauðsyn og sögulegu réttlæti. Hann gekk í þjónustu land- búnaðarráðuneytis bolsévíkastjómarinnar strax árið 1918, og árið 1919 var rækt- unarstöð hans gerð að ríkiseign með samþykki hans sjálfs og sett undir yfirstjóm landbúnaðarráðuneytisins. Tilkoma sósíalismans gaf Mitsjúrin nýjan starfsþrótt og nýja von. Það sem hann ritar um lífsstarf sitt á áttræðisafmælinu er með allt öðmm blæ en það sem hann ritaði 20 ámm áður. Nú virðist honum framtíðin björt og honum finnst sínu hjartans máli borgið í höndum sovétþjóðanna. Hann fagnaði því einnig að hin mikla hugsjón Leníns um endurræktun eyddra landssvæða væri orðin að raun- verulegu hagnýtu viðfangsefni miljóna sovétbúa. Mitsjúrin minnist þess með stolti að sjálfur Lenín veitti starfi hans athygli og taldi það mikilsvert. Garðyrkjustöð Mitsjúrins var aukin mjög árið 1921 eftir fyrirmælum stjórnar- innar og gerð að stórkostlegri tilrauna- og uppeldisstöð jurta fyrir öll Sovét- ríkin. í dag er Mitsjúrin-rannsóknarstöðin stórfengleg vísindastofnun þar sem ræktaðar eru nýjar tegundir jurta og ungir menn fá undirbúningsmenntun undir störf í öllum greinum landhúnaðarins. Sérstakt ríkisbú hefur verið sett upp í sambandi við rannsóknarstöðina. Aldin- garðarnir þar sem ræktaðar eru ávaxtategundir Mitsjúrins ná yfir þúsundir hekt- ara. Undir þessa stöð heyra 50 aðrar aldinræktarstöðvar víðsvegar um Sovétríkin. Stjórn Sovétríkjanna veitti Mitsjúrin margskonar viðurkenningu og heiður. Len- ínorðuna fékk hann árið 1931 og einnig hið rauða heiðursmerki vinnunnar. Árið 1932 var horgin Kozlof í Tambof-héraði þar sem Mitsjúrin starfaði alla sína löngu ævi skírð nafni hans og heitir nú Mitsjúrinsk. 1 bréfi til Stalins sem Mitsjúrin ritaði á 60 ára starfsafmæli sínu segir hann: „Kommúnistaflokkurinn og verkalýðsstéttin hafa gefið mér allt sem ég þarfnast — allt j>að sem vísindamaður getur óskað sér til þess að geta starfað." Mitsjúrin sá draum lífs síns rætast: Dýrmætar nýjar ávaxtategundir, sem hann hafði komið upp, urðu almennings eign. Hann lét jurtir vaxa og bera ávöxt á landssvæðum þar sem menn hafði ekki dreymt um að sjá tré svigna undan þunga þroskaðra aldina, vínþrúgur í Tsjeljabinsk, aprikósur í Síberíu, perur í Altaj- fjöllum. — „Vér getum ekki heðið eftir því að náttúran rétti oss gjafir sínar. Vér verðum að knýja hana til að láta þær af hendi.“ Þetta voru einkunnarorð Mitsúrins og það má með sanni segja að hann lagði grundvöllinn að valdi mannsins yfir þróun náttúrunnar. „Mennirnir geta og hljóta að framleiða nýjar jurtategundir betri en þær sem náttúran sjálf hefur skapað." Réttmæti þessara ummæla sannaði Mitsjúrin sjálfur með ævistarfi sínu og þau orð eru nú letruð á fótstall styttu hans í Mitsjúrinsk.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.