Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1958, Síða 21

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1958, Síða 21
HALLDÓR KILJAN LAXNESS Þessi hlutur - eða tónlist af streingjum Inorðanverðum hinum mikla hall- argarði í Peking, Pei Hai, stendur lítill gildaskáli þar sem Tzu Hsi keis- aradrotníng var vön að hvíla sig og fá sér ofurlitla mismálagetu þegar hún var úti að gánga sér til hressíng- ar. En eftir að keisaraættinni hafði verið hrundið frá völdum snemma á þessari öld urðu fáir til að efla og styrkja gildaskálann í Norðurgarðin- um, enda lagðist hann af mikinn part úr mannsaldri. Ekki als fyrir laungu vitnaðist að enn væru á lífi fjórir eldamenn drotníngar. Þar voru þeir menn sem einir í Kína kunnu að mat- reiða við hæfi tíginna manna er áður réðu fyrir landi. Sá sem séð hefur hallir keisaranna mun renna grun í hvílík þau krásaborð hafi verið, sem slíkum öldúngum væru samboðin. Svo hafa sagt fróðir menn, að aldrei hafi færra en hundrað rétta verið fram borið fyrir Tzu Hsi keisara- drotníngu á málum, og hafi hún kroppað lítið eitt af hverjum einsog fugl. Síðan drotníngu leið hefur ekki verið skammtað af slíkum skörúngs- skap í Kínaveldi. í fyrra lét ríkisstjórnin kalla frammúr myrkrum forna eldamenn keisarahirðarinnar og lagði fyrir þá að kenna úngum matsveinum að búa nokkra þá fáheyrða og undursamlega krásadiska sem að öðrum kosti myndu falla í gleymsku eilíflega. Þá var aftur lokið upp hinum forna gildaskála í Pei Hai og var hann gerð- ur að skóla matreiðslumanna er mest hlutverk var ætlað í þeirri grein í Kínaveldi. Ekki var seinna vænna að smala saman hinum fornu meistara- kokkum, því tveir dóu úr elli sama ár- ið og þeir voru endurhafnir til virð- íngar, og eru nú aðeins tveir eftir að kenna mönnum list sem er einstök í heimi. Mér var sýndur sá óverðskuldaður sómi sem ég verð seint maður til að lofa einsog vert er, og aldrei að umbuna, að síðastur matreiðslumað- ur kínversku keisaraættarinnar reiddi okkur hádegisverð sjálfur. Málsverð- urinn samanstóð af margföldum krás- um eftir því sem siðvenja var til við hirð þeirrar drotníngar sem ekki hef- ur aðeins staðið ofar flestum keisara- 11
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.