Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1958, Page 37

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1958, Page 37
UM SÖFNUN OG VARÐVEIZLU ÍSLENZKRA SÖGUHEIMILDA háaloftum, er þeim hafði verið ætlað- ur staður til þessa, inn í reisulegasta hús bæjarins. Safnahúsið er glæsileg- ur vottur um stórhug hinnar ungu aldamótakynslóðar íslands. Loksins hafði hin bókelska þjóð reist andlegri iðju sinni verðugan minnisvarða. En þótt við höfum búið hinum opinberu heimildum sögu okkar öruggan sama- stað, þá fer því þó fjarri, að við höf- um gert öllum söguheimildum okkar rétt skil. Saga fslands er ekki öll, þar sem er hin opinbera saga þess, og ís- lenzkar söguheimildir eru ekki allar í þeim gögnum, sem tengdar eru hin- um sundurleitu greinum ríkisvaldsins. íslenzka þjóðin á sér, eins og allar aðrar þjóðir, sína rúmhelgu sögu, svo sem hún birtist í dagfarslegri önn ein- staklinga og þjóðfélagsstétta og sam- tökum þeirra. Það er hér sem komizt verður inn að kviku þjóðarsögunnar, og því miður eru fjölmargar heim- ildir um þessa sögu í voða, og hefur svo verið um langa stund. Þessum heimildum má skipta í tvo aðal- flokka: sendibréf einkamanna og heimildir um atvinnusögu þjóðarinn- ar, sérstaklega verzlunarheimildir hennar. Það dylst engum, sem fengizt hefur við sagnfræðileg viðfangsefni, hvílík- ur heimildaauður er fólginn í bréfum einkamanna. Heimildagildi þeirra fer auðvitað mjög eftir þeim sögulegu aðstæðum, sem þau eru skrifuð við. Á sumum öldum varð bréfritun sér- stök listgrein, háð föstum formum ákveðinnar tízku, svo sem í tíð hinn- ar klassísku rómversku fornaldar, er Ciceró og Seneca sköpuðu fyrirmynd- ir í bréfgerðarlist og höfðu djúp áhrif á bréfaskriftir renaissancetímans og allar götur fram á 18. öld, einhverja mestu bréfaöld sem um getur í Evr- ópu. Stundum eru slík bréf heilar rit- gerðir heimspekilegs eða fagurfræði- legs efnis, svo sem bréf þeirra Goethes og Schillers, stundum eru þau ekki annað en bæjar- eða hirðslúður, en jafnan hafa þau að geyma sögulega tjáningu á staðreyndum, sem aðrar heimildir þegja oftast um. Þótt mað- ur skyldi ætla, að bréf væru fyrst og fremst heimildir um persónusögu manna, þá er hitt engu óalgengara, að þau varpi nýju ljósi á almenna sögu, fjölbreytnin í heimildagildi einkahréfa á sér yfirleitt engin tak- mörk. Bréfin eru ein persónulegasta tjáning hverrar aldar, rödd hennar og ósjaldan leyndarmál hennar, þar má oft greina sannleikann frá hinni opin- beru lygi. 19. öldin er hin mikla bréfaöld í sögu Islendinga, og engin furða í svo strjálbýlu landi með erfiðar sam- göngur og lengst af lítinn blaðakost, en í sama mund hafði þjóðin milda þörf fyrir að ræðast við innbyrðis. Heimildagildi íslenzkra bréfa á síð- ustu öld er því að sumu leyti meira en gildi sams konar heimilda er- lendra. Við þetta bætist, að hinn ís- 27
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.