Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1966, Qupperneq 9

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1966, Qupperneq 9
Verlcalýðshreyjingin í Vestur-Evrópu andspœnis nýkapítalisma skattakerfi sínu, meiri en Svíþjóð eða nokkurt Norðurlandanna. Ennfremur hafa brezkar rannsókn- ir sýnt fram á að ráðstafanir hins op- inbera til tekjujöfnunar (með skatt- lagningu og almannatryggingum) liafi aðeins leitt til þess að hilið milli há- og lágtekna minnkaði um fimm- tung árin 1953 og 1957, miðað við það misræmi sem markaðslögmál kapítalismans hafa sjálfkrafa í för með sér. Þannig dregur „velferðar“ löggjöf Breta óverulega úr hinu efna- hagslega ójafnrétti, eins og það birt- ist í tekjuskiptingunni. Hún mjókkar h'tið bilið milli ríkra og fátækra, en leiðir hins vegar til umtalsverðrar „láréttrar14 tekjutilfærslu t. d. frá reykingamönnum til hinna sem ekki reykja og frá barnlausu fólki til harnafjölskyldna. En öll viðleitni sósíaldemókrata til að dreifa tekjum hinna auðugu til hinna fátæku strand- ar á því að þeir hafa hvarvetna virt hina ríkjandi eignaskipan auðvalds- þjóðfélagsins. Kringum 1955 voru % hlutar allrar einkaeignar í Eng- landi taldir vera í höndum eins hundraðshluta þjóðarinnar (fulltíða manna) og jafnstór hundraðshluti átti % alls hlutafjár; afgangurinn var í höndum annarra 9 eða 10 hundraðshluta. Af þessum staðreyndum má ráða að afrekaskrá jafnaðarmannaflokka V-Evrópu, eftir sextíu ára starfsemi, er allt annað en glæsileg. Það er ekki aðeins að þeim hefur hvergi tekizt að koma á sósíalisma, heldur hafa þeir ekki komið til leiðar neinum meiri háttar breytingum á gerð (strúklúr) þeirra þjóðfélaga sem þeir hafa náð fótfestu í. Vonir manna um að stefna sósíaldemókrata yrði Vesturlöndum það sem Lenínisminn varð austrinu hafa brugðizt hrapal- lega. Því er brýn ástæða fyrir alla sósíalista og verkalýðssinna að skil- greina orsakirnar sem liggja til hins ójafna gengis beggja helztu stjórn- listarkenninga verkalýðshreyfingar- innar í Evrópu. Hinar félagslegu forsendur lenínism- ans og sósíaldemókratísins Eins og áður segir tókst rússnesk- um bolsjevíkum að leiða þjóðfélags- byltingu til sigurs samkvæmt stjórn- listarkenningu Leníns, ná völdum í Rússlandi, mola niður ríkisvél þess, uppræta kapítalismann og færa efna- hagskerfi víðlendasta ríkis Evrópu í sósíalískt horf. Með svipaðri stjórn- list, lagaðri eftir aðstæðum aust- ræns bændaþjóðfélags, tókst kín- verskum kommúnistum að fram- kvæma engu þýðingarminni þjóðfé- lagsbyltingu í Asíu. Af gengi hinnar lenínísku stjórn- listar verður einfaldlega ályktað að hún hafi verið réttilega mótuð eftir hinu félagslega umhverfi A-Evrópu — og Rússlands sérstaklega — í fullu samræmi við hinar sérstöku aðstæður 327
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.