Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1966, Side 27

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1966, Side 27
VerkalýSshreyfingin í Vestur-Evrópu andspænis nýkapítalisma bera, sameiginlega þj ónustustarfsemi muni í náinni framtíð gefa honum kost með svipuðum kjörum, á opin- berum þvottahúsum, þægilegum al- menningsfarartækjum, skemmtigörð- um og íþróttastofnunum í nágrenni við heimili hans. Undir núverandi kringumstæðum er einstaklingurinn beinlínis nauðbeygður til þess aðlaga sig eftir gildiskvörðum „neyzlusam- félagsins“, ekki af því að hann hafi fyrirfram einhverjar sérstakar mæt- ur á þeim, heldur vegna þess að hann á ekki annars völ. Einkaauðmagnið sem hefur kverkatök á efnahagslíf- inu, heldur hinni opinberu, sameig- inlegu þjónustustarfsemi niðri á lág- marksstigi. Meðan svo er halda lausn- arorð launþegans áfram að vera: hærra kaup, meiri neyzla, þ. e. lífs- hættir sem eru bein eftirlíking á lífs- háttum borgarastéttarinnar. í þessari þróun eygir borgarastéttin þá von að hugmyndafræði hennar muni endan- lega takast að kæfa hugsjón sósíal- ismans í flóði einkaneyzlunnar og djúpi firringarinnar. Vilji verkalýðsstéttin og flokkar hennar stöðva þessa þróun og breyta henni frá rótum, þá eiga þau, að áliti Gorz,ekki nema um eitt aðvelja: hefja nú þegar baráttu fyrir „nýju samfélagi, nýrri neyzlufyrirmynd, lífsháttum og menningu sem grund- vallast á samfélagslegri þjónustu, á fullnægingu menningarlegra og skap- andi þarfa og á alhliða þróun mann- legra hæfileika.“ Það sem ljær bar- áttunni fyrir slíkum eigindaþörfum byltingarsinnað inntak í auðvalds- þjóðfélagi er sú staðreynd að þeim verður ekki fullnægt eftir lögmálum markaðsframleiðslunnar. Þær eru skv. skilgreiningu sinni óarðbærar og eru því megundarlega í mótsögn við kapítalismann. Það er greinilega engin gróðavon í því fyrir einka- auðmagnið að fegra borgarumhverf- ið, gera það aðlaðandi fyrir íbúana með skemmtigörðum, snyrtilegum torgum og trjágöngum; að fjölga almenningsfarartækjum, reisa þvotta- hús og barnaheimili í hverju hverfi; að bæta og fjölga stórlega menningar- og hressingarstofnunum, skólum, leikhúsum, bókasöfnum, hljómleika- höllum, íþróttahúsum og sjúkrahús- um; að beita sér fyrir efnahagslegri uppbyggingu og þróun vanþróaðra héraða þar sem skortur er á sérhæfðu vinnuafli, nálægum mörkuðum, góð- um samgöngum o. s. frv.; að efla virka tómstundaiðju, stuðla að hlut- lægri og frjóvgandi fræðslu o. s. frv. Allt eru þetta markmið sem ganga út frá eigindaþörfum manna og stang- ast á við skammsýn gróðasjónarmið einkaauðmagnsins. Baráttan fyrir þessum ófullnægðu þörfum sem eiga sér djúpar, en oft ómeðvitaðar rætur hjá hverjum launþega, er m. ö. o. barátta fyrir útvíkkun hins opinbera geira efnahagslífsins, gegn athafna- frelsi einkaframtaksins, gegn frelsi 345
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.