Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1966, Page 38

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1966, Page 38
Tímarit Máls og menningar heil þjócf legið í jelum. Geta ekki jornleijarannsóknir gefið hér gildandi úr- skurð? En áður en kemur að beinu svari við því, viltu kannski segja mér eitthvað almennt um fornleifarannsóknir hér á landi? Fornleifarannsóknir á íslandi hófust með Sigurði Vigfússyni, þótt í smá- um stíl væri, síðan gerði Daníel Bruun höfuðsmaður og Finnur Jónsson pró- fessor nokkra uppgrefti, sem voru á miklu fullkomnara stigi faglega séð en rannsóknir Sigurðar, sem von var til. Þá komu svo rannsóknir Matthíasar Þórðarsonar, en þær urðu aldrei eins miklar og hann hefði viljað, því að varla er von að önnum kafinn embættismaður, eins og hann var, komi miklu slíku til leiðar. Stærsta átakið í íslenzkum fornleifarannsóknum varð þó ein- mitt á hans dögum, rannsóknirnar í Þjórsárdal 1939, en í þeim tóku þátt fornleifafræðingar frá Danmörku, Finnlandi og Sviþjóð auk íslendinga; Matthías Þórðarson hafði yfirumsjón með verki allra þessara manna. Á síð- ustu tveimur áratugum hefur verið unnið nokkuð að uppgröftum eftir því sem tími okkar fáu safnmanna hefur leyft, og þótt ekki sé meira, hafa þó þessar rannsóknir leitt margt í ljós, sem á ýmsan hátt varpar ljósi á menn- ingarsögu íslendinga. Ég skal nefna fáeina staði, þar sem skipulegir upp- greftir hafa verið gerðir: Bergþórshvoll, Skálholt, Gröf í Oræfum, Þórarins- staðir á Hrunamannaafrétti, Klaufanes í Svarfaðardal, Forna-Lá í Eyrar- sveit, Reyðarfell í Borgarfirði, Hvítárholt í Hrunamannahreppi, Gjáskógar og Sandártunga í Þjórsárdal. Þetta má allt kalla stóruppgrefti á okkar mæli- kvarða, en þar til kemur svo margt smærra. Rannsóknarskýrslur eru gefnar út í Árbók hins íslenzka fornleifafélags, en Skálholt bíður þó enn útgáfu. Þið liajið grafið upp marga fornmenn og fundið ýmsa muni eftir þá. Hvaða fundi telur þú merkasta? Jú, grafir frá heiðni eru einmitt drýgsta uppsprettan. Það finnst venjulega eitthvað af slíkum gröfum á hverju ári, og þá reynum við að komast sem fyrst á staðinn til þess að rannsaka þær. En það er hér eins og í flestum lönd- um öðrum nú orðið, að það eru jarðýtur, sem finna grafirnar, og það eru ekki mjúkar á þeim krumlurnar. I bókinni Kuml og haugfé úr heiðnum sið á íslandi, sem út kom árið 1956, dró ég saman allt sem ég fann um fornar heiðnar grafir og það sem í þeim hefur fundizt og reyndi að draga af þessu öllu saman þær almennar ályktanir, sem mér fannst efnið heimila. í síðustu Árbók fornleifafélagsins gerði ég svo yfirlit yfir það sem síðan er fram kom- ið, og í sumar rannsakaði ég eina sæmilega góða fornmannsgröf. Mér telst 356
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.