Tímarit Máls og menningar - 01.12.1966, Blaðsíða 42
Tímarit Máls og menningar
getað flutt með sér allan þann bústofn sem snemma er talinn í eigu íslend-
inga?
Benedikt frá Hofteigi er mikill áhugamaSur um frumsögu íslands eins og
aðra sögu. Hann hefur stundum sneitt að íslenzkum fornleifafræðingum, að
þeir séu athafnalitlir, en alltaf hefur hann gert það mannúðlega, og sá tími
er nú sem betur fer liðinn, að menn leggi fæð hver á annan eða rífist eins og
rakkar, þótt þeir séu ekki sammála um fræðileg efni. Menn eru hættir að hat-
ast ævilangt út af stafsetningu. Góðkunningi minn Benedikt mun því áreið-
anlega ekki þykkjast við mig, þótt ég segi frá einu tilsvari, sem ég ætla að
hafa eftir honum. Ég spurði hann einu sinni hvaða skýringu hann gæti gefið
á því, að aldrei fyndist neitt, alls ekki sú minnsta agnarögn, af minjum eftir
hina miklu og menntuðu þjóð, sem hann telur hafa búið hér á landi áður
en landnámsmenn komu til landsins, kannski hundrað þúsund manna þjóð. Af
hverju finnast aldrei neinar minjar eftir hana? Benedikt svaraði hiklaust:
„Það er af því að þið leitið ekkert að þeim.“ Mér fannst þetta skemmtilegt
tilsvar, og það er býsna margt í því fólgið, ef vel er að gáð. En úr því að þú
minnist á bústofn sérstaklega, þá held ég, að ekki hafi verið neinn vandi að
lifa hér í nokkur ár á meðan landsmenn voru að koma upp hústofni af þeim
tiltölulega fáu skepnum, sem þeir hafa haft með sér á skipum sínum. Þetta
kemur fljótt, eins og við vitum. Og landið var fullt af veiðiskap, sjórinn,
árnar og vötnin, auk þess hafa landnámsmenn haft með sér birgðir vista, sem
þeir hafa gert sig út með, þurrkað kjöt, harðan fisk og smjör, og þar að auki
er sennilegt, að kaupmenn hafi komið hingað alveg sérstaklega til þess að
selja matvæli, meðan bú manna voru ekki orðin nógu stór. Og einhvers staðar
er talað um, að út kæmi skip hlaðið kvikfé, auðvitað til að selja mönnum,
sem vildu koma fyrir sig búi sem allra fyrst. Ég sé enga ástæðu til að halda,
að menn hafi ekki getað haft ofan í sig hér í landinu þessi örfáu ár sem það
hefur tekið að koma upp snotru búi. Sama sagan og hér hefur svo endurtek-
ið sig, þegar þeir fluttust til Grænlands, og ekki er ósennilegt, að eitthvað
svipað hafi gerzt víðar í heiminum á ýmsum tíma, þar sem menn hafa verið
að nema lönd. Menn byrja ekki með allt til alls, en lifa samt af frumbýlings-
árin.
Björn Þorsteinsson grefur upp forna heimild um að fsland sé nefnt fraland,
telur fra hafa búið í Fœreyjum á 8. öld, en síðan þokað sér hingað norður
með búsmala og tekið að nema hér land. Bendir ekkert til að fyrir landnáms-
tíð hafi hér verið aðrir írar en þeir einsetumenn sem Ari nefnir?
360