Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1966, Qupperneq 58

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1966, Qupperneq 58
Tímarit Máls og menningar Og hann var bara kvikindi, reglulegt óartarkvikindi við sína nánustu, ég segi það eins og var, þó hann sé dauÖur. Ég er ekki aÖ segja að Elías minn væri mikið skárri, en ég fortek fyrir guði — og hverjum sem er — að hann hafi verið verri. Svo ég botna hreint ekkert í þessum ósköpum með hann. Og að biðja fyrir honum, eitthvað öðrum fremur, það hefir mér hreint ekki dottið í hug. Það er ekki það, engum væri kærara en mér, að hann fengi frið í gröfinni, tötrið, úr því hann er dauöur á annaÖ borð. En að það komist í framkvæmd með mínum fyrirbænum, það kemur ekki til mála. Vinkonan hvimar augum um herbergið meÖan ekkjan lætur dæluna ganga. Það er talsvert farið að skyggja — og hér eru ekki rafljós. Og nóvembernóttin er löng. Hún á ekki annars úrkosti en að gista. Og þótt henni sé hugleikiÖ að gera vinkonu sinni greiða, sem hún veit að hún fær ríkulega goldinn, ef vel tekst til, þá sækir að henni óhugnaður, sem hún vildi fegin vera laus við. Hún gaumgæfir vinkonu sína öðru hvoru, veit að hún er vön að ganga með festu og dugnaöi að hverju verki og ekki kvartsár manneskja. En fegin vildi hún vera komin heim í stofuna sína, í hlýtt dularrökkur innan götuljósa, og auð- velt að rjúfa það með því að styðja laust á rofa. Það er annað fyrir skyggna konu að verða eins og annars vör á slíkum stað og í návist fólks, sem skilur slíka hluti réttum skilningi. Þeim skilningi er ekki til að dreifa hér. Og hér er allt svo nöturlegt, gegnsæ gluggatjöld, fátækleg húsgögn, fjalagólf, sem marr- ar í við hvert spor sem maður stígur. Og þegar dimmt er orðið læsist myrkr- ið um húsið, eitt hús í endalausum myrkraheimi, með olíulampa í hverju herbergi, daufa týru, sem lýsir aðeins lítinn hluta hvers herbergis. Það fer hrollur um vinkonuna. Ekkjan veitir því athygli. — Það setur að þér, Hall- dóra mín. Þú ert auÖvitað þreytt eftir ferðina. Og svo er heldur ekki eins heitt hérna og heima hjá þér. Ég skal skreppa niöur og skerpa á miÖstöÖinni. Eða biðja hana Onnu að gera það. Viltu ekki bregða herÖasjalinu mínu yfir þig á meðan? En vinkonan aftekur að sér sé kalt. — Mér datt bara í hug — að við ættum kannski að fá — einhvern mér færari til að gera eitthvaÖ í þessu fyrir þig, segir hún, efandi þó. — Já, þú mátt ekki halda að ég vantreysti þér og þínum hæfileikum nokk- uð, segir ekkjan. — En mér hefir líka dottið þetta í hug. Svo þessvegna bað ég prestinn að koma hingaö í kvöld. — Prestinn? Vinkonan starir á hana felmtruð og ringluÖ. — Auðvitað sagði ég honum ekkert hvað ég vildi honum, flýtir ekkjan sér að bæta við. — Það ætlaÖi ég að biðja þig að gera, þú kemur svo vel orðum að þessu, eftir hans höfði. 376
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.