Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1966, Page 63

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1966, Page 63
Elías Elíasson legir prestar gera, því þar eru sæti kirkjufólksins. Þegar þau eru í messuleik stendur presturinn ævinlega uppi á altarinu. Guðný var einmitt að blessa yfir söfnuðinn, baðaði út höndunum og söng: Hvaða þras — hávaði og mas — haltu kjafti og bíttu gras. En þetta lærði hún af stráknum, sem var í sumar og syngur það alltaf síðan, þegar þau eru í messuleik. Þá datt hún fram af altarinu í miðri vísu. Það var alveg eins og henni væri hrint, fullyrðir Vigga. Fólkið forðast að líta hvort á annað. Frúin, Halldóra, er óvenju fyrirferðar- lítil við hlið ekkj unnar. — Það gæti hugsazt að huldufólk byggi þarna, segir hún vandræðalega. — Því er svo illa við hávaða og traðk á híbýlum sínum. Bóndinn hlær gremjulega. — Það er þá furðu þolinmótt. Þarna fórum við systkinin í alla mögulega leiki, þegar við vorum lítil. Ég hef aldrei heyrt um neitt huldufólk hér á Brekku ... — Það getur ýmislegt verið tii, sem þú hefir ekki heyrt um, Elías, segir ekkjan hvasst. — Þú ættir þó að muna eftir honum Álfabletti, hérna inn í iniðju túni. Ég veit ekki til að hann hafi nokkurntíma verið sleginn, hvorki af þér né föður þínum. Svo ég veit ekki hvað þú ert að fara með. Huldufólk er líklega hér á Brekku, eins og annarsstaðar, þó að við höfum ekkert samband haft við það, sem ekki er von, jafn gersamlega óupplýst fólk í andlegum efn- um og við erum. Nema þessi litla kristindómsfræðsla sem maður fékk, og sýnist nú hafa farið fyrir ofan garð og neðan hjá ykkur systkinunum, sem ekki trúið einu sinni á annað líf. — Mamma! hrópar dóttirin hneyksluð. En sonurinn eyðir ekki orðum að fjasi móður sinnar. Hann vill tala við lækni, vegna telpunnar. Anna húsfreyja er inni hjá henni og sinnir þörfum hennar áhyggjufull. — Ykkur finnst liklega að mig varði ekki mikið um tóruna í henni nöfnu minni, en ég hefði nú beðið hana Halldóru mína að halda í hendina á henni og fara með eitthvert gott orð, fremur en tala við þennan lækni, sem aldrei getur eða gerir neitt, þusar ekkjan með þunga. — Ætli það ætti ekki að nægja, að hún móðir hennar sé yfir henni, þrum- ar sonurinn urn leið og hann vindur sér fram á ganginn að símanum. — Nei, nei, góða Guðný mín, segir vinkonan særð. — Það þýðir ekkert fyrir mig, þar sem svona mikil andúð og vantrú er annars vegar. — Það er ekki það, grípur dóttirin fram í fyrir henni í hænarrómi. — Hann Elli misskildi mömmu. Þú mátt trúa því, að hann átti ekki við það sem þú heldur. Og ég er viss um að hún Anna yrði þér reglulega þakklát, ef þú vilt gera þetta fyrir mömmu. Hún horfir grátbiðjandi á þær til skiptis, móður sína og vinkonuna. Og Halldóra mildast óðara. — Æ, það er nú svo lítið, sem 381 L
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.