Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1966, Qupperneq 64

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1966, Qupperneq 64
Tímarit Máls og mcnningar ég get. En stundum hefir mér máttkari og hetri verum tekizt að nola mig sem verkfæri, segir hún hátíðlega. — O-o, þær hafa nú stundum notazt við þá sem síður skyldi, eftir því sem maður hefir heyrt, fullyrðir ekkjan. — Ef það er nú satt, að annar eins ó- merkingur og hann Hafliði hérna frá Bjólu sé farinn að gera ótrúlegustu kraftaverk fyrir sunnan. Eins og hann hagaði sér meðan hann var mjólkur- bílstjóri hérna, bæði við foreldrana og kærustuna — eða kærusturnar, rétt- ara sagt. Því ekki var nú nema mánuðurinn á milli barnanna hjá þeim, og það tvíburar hjá þeirri, sem hann var ekki hringtrúlofaður. Þvílíkt! Tvíburar! Maður hefir aldrei heyrt annað eins. Og svo laug þetta hræ úr og í um alla skapaða hluti. Þarna lá við að hann legði þrenna foreldra í gröfina: foreldra sína, og svo Ástu, ræfilsins, og Imbu, druslunnar, með tvíburana. Svo stekkur þetta suður frá öllu saman og lætur ekkert til sín spyrjast fyrr en hann er gift- ur þeirri þriðju og farinn að lækna fólk með handayfirlagningum og fyrir- bænum. Eg hef heyrt fullyrt, að hann geri hrein kraftaverk. Svo manni finnst nú, að manneskja eins og þú, Halldóra mín, sem aldrei hefir svo mikið sem hugsað óhreina hugsun, hvað þá drýgt nokkra synd, hljóti að vera ólíkt með- færilegra verkfæri í drottins hendi, en þessháttar kónar. Vinkonan andvarpar, fer hjá sér og rennir síðan augum upp í eldhússloftið. Og ofan af loftskörinni kallar húsmóðirin angistarlega: Halldóra! Halldóra mín! 1 guðs bænum komdu. Hún er að líða útaf í höndunum á mér. Húsbóndinn sleppir heyrnartækinu og hrópar: — Reyndu að stilla þig, kona! Er hún að fá aðsvif aftur? Ég er að tala við læknirinn, hann er alveg að koma. En konurnar eru allar teknar á rás upp stigann og heyra varla til hans. Stiginn glymur og skelfur undir misþungu fótataki þeirra. Og á eftir þjóta hörnin og ýlfrandi hundurinn Sesar á hæla þeim. Kötturinn, Kleópatra, hefir laumazt undir eldavélina og þvær sér í ákafa, ósnortinn af fyrirgangi heimil- isfólksins og Sesars. Öðruhverju lygnir hann værðarlega augum með þeirri alvitru heimspeki í svipnum, sem köttum einum er eiginleg. En heimilisfaðir- inn er allt annað en vær á svipinn, þegar hann þrífur ofan heyrnartækið og hlustar. Tvær konur á línunni eru að hefja samtal: Hvernig líður nýbærunni hjá þér? — Ég þarf að ná í stöðina í grænum hvelli, öskrar bóndinn frunta- lega i eyru þeirra. — Það varð slys hérna, bætir hann við, þegar konurnar hvá. Þær þagna strax, og hann hringir á stöðina eins og óður maður. Kon- urnar hengja upp heyrnartækin meðan hann hringir, en um leið og stöðin svarar taka þær báðar ofan aftur. Þær hengja áreiðanlega ekki upp aftur 382
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.