Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1966, Page 65

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1966, Page 65
Elíus Elíassun fyrr en liann er búinn að tala við lækninn. Maður lætur nú ekki slysafréttir fara framhjá sér. Það er alltaf öruggast að fá þær frá fyrstu hendi. En þær fá engar fréttir strax. Læknirinn er ekki heima, hefir verið kvaddur til sjúklings á hinum enda héraðsins. Og það tekur langa stund að ná í hann. Því eins og ævinlega, þegar læknir er sóttur til sjúklings í sveitahéruðum, reynast flestir á línu sjúklingsins meir og minna illa haldnir ýmsum kvillum. Og jafnvel á öðrum nærliggjandi línum. Meðan stúlkan á símstöðinni rekur slóð læknisins, eins og þaulæfður leynilögreglumaður slóð glæpamanns, sitja konurnar á Brekku umhverfis litlu stúlkuna og vinkona ekkjunnar heldur í hönd barnsins, horfandi hálfluktum augum inn í framandi veröld. Móðirin situr með telpuna í fanginu, áhyggjufull en ekki vonlaus. Ekkjan hefir tekið drenginn Elías á kné sér og horfir fast á nöfnu sína. Það er hörð einbeitni í tillitinu. Og dóttirin, Sigríður, drúpir höfði, ráðvillt og heygjuleg, líður sýni- lega illa. Vigga litla hefir stungið upp í sig fingri og sýgur hann í ákafa. — Það er einhver liér inni, sem ekki trúir og dregur úr mér kraft, hvíslar vinkonan nær óþekkj anlegri röddu, tæpir á orðunum, eins og hún sé að herma eftir barni. — Ættum við ekki að syngja sálm, Halldóra mín, leggur ekkjan til mála. — Jú, við skulum syngja sálm, einhvern fagran, traustvekjandi sálm, lijalar vinkonan, án þess að opna augun. Sýnilega er hún þegar að hálfu í öðr- um heimi. — Við þörfnumst öll hjálpar — öll hjálpar og miskunnar og þess unaðssemdanna ástarkrafts, sem streymir fram — streymir fram. — Náðu í sálmabókina mína, Sigga, segir ekkjan, en tekur sig á. — Nei, mér dettur nú í hug sálmur, sem þið hljótið allar að kunna: Ó, minn Jesú, elskan bliða, ofan kominn hér á jörð, helvítis við her að stríða — kunnið þið þetta ekki allar? Konurnar hrökkva saman og vinkonan glennir upp aug- un og er öll komin inn í svefnherbergi Brekkuhjóna. — Ekki þetta, elsku Guðný mín, biður hún kærleiksþrunginni umburðarlyndisröddu. Ekkjan skilur hvorki upp né niður. — Nú, ég hélt að það væri þó guðsorð, og það ekki af lakasta tagi, segir hún dálítið afundin. Vinkonan flýtir sér að loka augunum. — 0, eitthvað ljúft og blítt, sem veitir elskunni styrk og kærleik- anum lækningamáttinn — Til dæmis þetta: Sanni vinur sálar minnar — hvernig er þetta nú aftur — líkna sekum synda þræli — nei — það er í næsta versi. Hvaða fyrirmunun er þetta, að ég skuli vera búin að gleyma sálminum, sem ég var alltaf að reyna að innprenta honum Elíasi mínum að fara með, þó 383
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.