Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1966, Page 71

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1966, Page 71
Elías Elíasson að ef ég get eitthvað gert fyrir fólkið hérna, þá tel ég mér það bæði ljúft og skylt. Ekki sízt eftir það sem þér sögðuð áðan um það sem ég talaði yfir Elíasi heitnum. Þér skiljið, það er svo sjaldan sem maður fær viöurkenningu. — Er það virkilega? Mér heyrist bókstaflega allir, sem á yöur minnast, liafa svo mikið álit á yður. Prestur lyftist í stólnum og hættir að toga í fing- urna, svipurinn verður hýr eins og á góðu barni, sem fær verðugt hrós í opin eyru. — Er það satt? Auövitað reyni ég að gera mitt bezta — en það er aldrei að vita hvað fólk vill helzt heyra. Maður reynir — en það er svo mikiÖ trú- leysi og fólk er svo fáfrótt, alveg ótrúlega fáfrótt. — Ég held að fólk sé ekki eins trúlaust og þið hugsiö, prestarnir, þó það sé kannski ööruvísi trúað .. . — Nei, ég átti ekki við það, fullvissar prestur og lyftir hægri hendi til á- herzlu. — Ég er ekkert að fást um það hverju fólk trúir, aðeins ef það trúir, ég meina, ef það trúir á algóöan guð, þér skiljið. Ég á við, ef það trúir á sína trú, þér skiljiö ... Hún kinkar kolli, full lotningar og djúpt snortin. — Ó, ég skil yöur svo vel, þér segið þetta svo fallega, einmitt svo fallega. Svona hef ég líka hugsað á minn hátt, að guð mundi ekkert vera að fást um það hverju maður trúir, aöeins ef maður trúir og breytir eftir sinni trú. — Ja, ég átti ekki alveg við það, heldur hitt, að ofmikil kredduhneigð, þér skiljið, og þröngsýni í trúarefnum, geri aðeins illt verra. Ég vil efla áhrif kirkjunnar, álít að hún eigi að láta allsstaðar til sín taka, í félagsmálum, fræöslumálum, uppeldismálum, sem sagt: á öllum sviðum þjóðlífsins. Kirkj- an á ekki að vera hornreka, eins og hún hefir verið með okkar þjóð öldum saman. Vér þörfnumst trúar, á því er enginn vafi, gott og vel, ef vér þörfn- umst trúar þörfnumst vér kirkju, ef vér þörfnumst kirkju þarfnast hún vor sjálfra og þess ... Prestur, sem allur hefir blásið í sundur meðan hann talaði, þagnar skyndi- lega þegar drepið er hóglega að dyrum og fyrrverandi heimasæta birtist þar með bollabakka í höndum. Og aökomukonan fær stund til að hugsa sitt ráð; stúlkan leggur á borð handa þremur. Og prestur lætur viðgang kirkjunnar lönd og leiÖ, en tekur að spyrja um veraldlega hluti. Meir að segja lætur hann fjúka svo hnittna brandara, að stúlkan getur ekki stillt sig um að hlæja, enda geðjast henni mjög vel að unga prestinum, einkum utan hempu, þó hann sé að sjálfsögðu einnig ágætur innan hennar. Af eðlilegum ástæðum þúast þau, presturinn tók það fram í sinni fyrstu stólræðu hér að hann frá- liæði sér þéringar sóknarbarna sinna. Enda lítur yngra fólkið á hann eins og 389
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.