Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1966, Page 81

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1966, Page 81
Elíus Eliasson því biði bana — bara til að gleðja liana. Ha, lia, ha! Hún er fín þessi. Og hnippir trúnaðarlega í mjúka síðuna á vinkonu ekkjunnar. — Jörundur, nú heldur þú þér saman! hrópar ekkjan og ryður sér leið til sonar síns. — Hefir nokkur heyrt annað eins! Ryðst hér inn fullur, með hund- inn í fanginu, og klæmist við hana Halldóru mína, aðra eins manneskju. Og ef þú getur ekki hagað þér eins og maður, skaltu fara inn í herbergið mitt og liggja þar meðan við ljúkum þessu af. Mér sýnist þú ekki þesslegur ... — Ljúkið hverju af? Hvað eruð þið að liespa af? Er farið að messa hér á Brekku? Og er sunnudagur? Ég hef verið á syngjandi túr í hálfan mán- uð — eða meira — og mig varðar djöfulinn ekkert um hvaða dagur er. En þú, séra Sveinbjörn, viltu snaps? — Þökk fyrir — ég drekk ekki — og sízt þegar ég er með bíl, svarar prest- urinn varfærinn og veit ekki hvort hann á að fara eða vera. — Þá það — þá það, aldrei neyði ég víni ofan í neinn, sízt guðs útvalda, þó þeir hafi náttúrlega mesta þörfina, þeir blessaðir guðs geldingar. En þú Elli, og þú Sesar greyið, minn eini, sanni vinur. Og réttir bróður sínum flösk- una, en klappar hundinum. — Og þú, Halldóra mín, þú þiggur einn lítinn, áður en við förum að hátta. Mikið andskoti ertu falleg! Og vera gift þessum bölvuðum amlóða, sem aldrei hefir getað ... — Jössi, hættu þessu kjaftæði, segir bróðirinn áminnandi og gefur Hall- dóru auga, þar sem hún situr, hneyksluð að vísu, en þó mild og móðurleg eins og sú sem allt skilur. — Kjaftæði, endurtekur komumaður. — Er það eitthvert kjaftæði, að kvenmaður þurfi að hafa almennilegan karlmann í bólinu, sem gerir sína skyldu? Sína skyldu, Elías bróðir, þú veizt hvað það er. Þú hefir gert þína skyldu — og meira til. Eða hvað segir þú um það, Anna mágkona? Hefir hann ekki staðið sína pligt? — Hættu þessu bulli, Jörundur minn, segir Halldóra nú góðlátlega og snýr sér að hinum drukkna. — Þú ættir að leggjast fyrir, ef J)ú vilt ekki sitja hér stilltur og taka þátt í þessari bænarstund með okkur. — Bænarstund? Ertu orðin vitlaus, manneskja? Eða er ég orðinn vitlaus? Bænarstund! Og það hérna á Brekku, þegar ég er að koma heim. Ert það þú, séra Sveinbjörn, sem ert að spila svona í fólki? Ég hélt þú værir allur í anda- trúnni en ekki Hvítasunnuúthaldinu. Og það verður ekki af neinum bænaþul- um hér í kvöld! Ég skal hella ykkur öll blindfull, helvítis fíflin ykkar. Svo getið þið beðið andskotann ráðalausan fyrir mér, ef ykkur sýnist. Ekki rétt, Sesar minn, eini vinurinn minn. Og ég vil fá kaffi, mamma, gott kaffi. Súptu 399
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.