Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1966, Page 82

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1966, Page 82
Tímarit Máls og menningar á, Halldóra mín, súptu á. Og svo skal ég kenna þér góða bæn á eftir, þegar við erum háttuð. Kanntu þessa: Dívaninn er þarfaþing ... En nú er ekkjunni nóg boðið í annað sinn á þessu kvöldi. Með heilu hend- inni þrífur hún ótrúlega fast í öxl sonar síns og hristir hann til, þennan stóra mann. — Nú þegir þú, Jörundur. Ég líð ekki klám í mínum húsum. Og annað- hvort fer þú út, eða talar eins og maður. Kaffi geturðu fengið á eftir. Sonurinn réttir út hrammana eins og hann ætli að slöngva þeim utan um móður sína. — Svona, mamma, svona, hvaða læti eru þetta, þó maður geri að gamni sínu, þá sjaldan maður kemur heim. Gefðu mér kaffi, kerling, ég er að drepast úr þorsta. Systir hans lætur nú til sín heyra, sýnu hressari en hún hefir verið síðan hún kom heim. — Ég skal fara með honum fram í eldhús, mamma, og gefa honum kaffi, svo þið getið . .. — Ég vík ekki frá hliðinni á henni Halldóru, tilkynnir hróðirinn. — Ég vil fá kaffið hingað. Presturinn er alltaf að blikka hana öðruhvoru, en það er ég sem ætla að sofa hjá henni í nótt, er það ekki, Halldóra mín? Ég fer -r> ekki fet frá þér, vík ekki frá þinni hlið að eilífu, amen. Og varaðu þig á prestinum, ég sé alveg hvað hann ætlar sér með þig, ha! Prestar hafa nefni- lega alltaf verið allra manna gra . . . Ekkjan lyftir snöggt heilu hendinni og það kveður við snarpur smellur. Sonurinn strýkur um vangann og h'tur viður- kennandi á móður sína. — Þetta geturðu enn! Nei, hún móðir mín, það fara ekki allir í fötin henn- ar, þó ekki sé stærðinni fyrir að fara. Ég hef aldrei vitað aðra eins hörku- snerpu í nokkrum kvenmanni. Og af hverju ertu með höndina í fatla? — Þú ættir að spyrja hann föður þinn að því, hrekkur út úr ekkjunni, en hún áttar sig við aðvörunarhljóð hinna. — Föður minn? Nú, ég get líklega ekki spurt hann margs, mann sem bú- inn er að liggja í gröf síðan í vor. En pahbi var ágætur, þó hann væri hörku- tól, ekki síður en þú. Það held ég. Bezti kall. En — þú þarna — séra Svein- hjörn, mikið djöfull gaztu logið fínt í ræðunni eftir hann pabba. Svei mér þá, að ég roðnaði niður á nafla — og lengra — ef maður mætti nokkuð segja fyrir kvenfólkinu. Hvað? Ertu að fara? Hvað liggur á? Presturinn er staðinn upp og víkur orðum að ekkjunni: -— Ég er hræddur um, Guðný, að við verðum — í þetta sinn ... — Það liggur líklega í augum uppi, segir ekkjan mædd. — Úr því Jör- undur þurfti að rekast hingað, svona líka á sig kominn, á þessu augnabliki. Það er annað en gaman að geta ekki lokið þessu af. 400
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.