Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1968, Side 102

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1968, Side 102
Tímarit Máls og menningar íslenzkan á líka fleiri en eitt orð um ]jaíí að losa sig við fljótandi úrgangsefni, og þau eru valin eftir því, sem bezt þykir fara hverju sinni. Barn pissar í kopp, virðulegir bændur labba sig út fyrir vegg og kasta af sér vatni, sjómenn míga út fyrir borðstokkinn. En í Astum samlyndra hjóna er migið í tíma og ótíma. — Þá er rass mikið eftirlætisorð höfundar og rass- gat, þegar stemmningin rís hæst. Maður færir sig við borð og heldur stólnum að rassi (bls. 36). Annar hagræðir feitum rassi á stólnum (bls. 39). Á einum stað mátti aldrei kveikja ljós og sjá ber læri og rassgat (bls. 41). Heill hópur manna lyfti rassi í prumpstöðu (bls. 59). Þetta er á vissan hátt ein myndrænasta setning bókarinnar. Ung kona ráfar letilega í góða veðrinu með hönd manns síns á annarri rasskinninni (bls. 80). Dæturnar styðja að baki móður sinnar og rassi (bls. 91). Hall- grímur Pétursson mun það eiga að vera, sem tyllir rassi á hól (bls. 135). Maður einn var sagður upprunninn einhvers stað- ar austan undan afskekktu rassgati (bls 170). Þannig er það táknað, að Austfirð- ingur er á ferðinni. Síldarkóngur segir, að landið megi renna á rassgatið, og sá sami kóngur skipar vini sínum að hætta að hafa viðurværið af rassgatinu (bls. 220). Það er andstyggilegt verk að tína þetta saman, en nú dugir ekkert annað en bíta á jaxlinn og vera þess minnugur, að hér er um verðiaunabók að ræða. — Að einum íslendingi fiaug sú hugmynd, að þjóðin befði breytzt í eins konar kuntu breidda á klett, sem varnarlið gætti (bls. 48). í svona fagurri mynd getur þjóðarstolt okkar birzt hjá öndvegishöfundum. Einum manni var fáránleg fjarstæða að tengja æskuna eigin pung og sæði (bls. 61). Tengdasyn- irnir, sem komu í heimsókn voru væru- kærir og graðir í grasinu (bis. 80). Bænd- umir smyrja júgrin og spenana og bellina á sér með smjöri (bls. 101). Hallgrímur Pétursson girntist sjúkt klof konu sínnar (bls. 141). Stúlkan, sem hermaðurinn af- meyjaði útúrfulla, var livarvetna timbnið næsta rnorgun nema í klofinu (bls. 222). Konur horfðu iaungröðum augum á nætur- vörðinn (bls. 224). Einum er brugðið um það, að guðsorð hlaupi í klofið á honum eins og hjá gamaili kerlingu (bls. 225). Þá er talað um mynd af manninum með höggormsböliinn á vissu pissiríi (bls. 218). Svo kemur hér mjög listræn aldarfarslýs- ing: „Þá var kókflaskan komma það sem kuntan er homma" (bls. 211). Einn stærir sig af því, að hann þekki klofin sundur á lyktinni (bls. 226). Á einum stað í bókinni ræðir kona ein um útsaum systur sinnar: „Og ég merkti ekki betur en ég feiigi ein- tóm kynfæri út úr púðunum" (bis. 93). Þetta þótti henni ekki benda til fullkom- innar heilbrigði. f Ástum samlyndra lijóna ber að minnsta kosti mest á kynfærum og þarfagöngum, hvaða ályktanir sem við eig- um svo að draga af því. Þetta verður að nægja um dónaskapinn, og virðist mér reyndar sumt af þessu heyra undir viðbjóð, ef enn er leyfilegt að nota það orð. En auk þessa er almennu máli mjög ábótavant, og í bókinni er öggt og krökkt af málvillum, svo að ég hef ekki fyrri séð þvílíkar í ritum viðurkenndra höfunda, og skulu hér nokkrar tilfærðar. Það er talað um menn, sem sjaldan undu sér fría stund frá útbreiðslustörfum (bls. 17). Hugsanleg er prentviila, undu fyrir unnu, en þá ætti frí stund að vera í eignar- falli. Á biaðsíðu 73 er maður nokkur milii hláturs og gráturs. Hallgrímur Pétursson tók ásteytingarsteininum eins og gefinn lilut á biaðsíðu 139. Á blaðsíðu 202 stend- ur: „hann má aldrei undir engum kring- umstæðum missa andlitið". Á biaðsíðu 242 er talað um að dáma að tíðarfarinu. Á íslenzku er talað um að dáma eittiivað, en 92
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.