Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1986, Side 11

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1986, Side 11
Adrepur En hvaða tíðindi boðar það að gamlir samningar hætti að mæla fyrir um hegðun manna? Að mínu áliti stóðu þeir í vegi fyrir því að blása mætti lífsanda í almenna bóksölu í landinu: nú er tækifæri til að gera það. Oft hefur verið rifist um hvort bækur séu eins og hver önnur vara. Það eru þær auðvitað en um leið mjög sérstök vara oft á tíðum — þú hleður aldrei sönnum tilfinningum í niðursuðudós eða sápustykki. Engu að síður er og ætti að vera vilji allra að sem flest eintök seljist. Sumar bækur eru auðvitað ekkert frábrugðnar áðurnefndri niðursuðu- dós, aðrar bækur á að meðhöndla af stakri virðingu fyrir innihaldinu. Gömlu samningarnir gerðu ráð fyrir því að allar bækur væru meðhöndlaðar eins. Með nýfengnu frelsi aukast vonandi möguleikarnir á að selja bækur eins og sæmir hverri bók fyrir sig. Eg tel að útgefendum og bóksölum væri báðum hollt að íhuga hvort þeir séu ekki menn til að lifa við og notfæra sér aukið frelsi án þess að allt hlaupi í hund og kött. Þeir eiga að taka höndum saman og gera bóksölu mun líflegri og skemmtilegri en hún er, til dæmis með því að vanda til framsetningar á bókum og bjóða viðskiptavinum upp á sérstök bókatilboð, einn eða tvo titla í hverjum mánuði. Það þarf að auka veg svokallaðrar bókaútsölu sem í mörgum löndum er einhver skemmtilegasta uppákoma ársins fyrir bóka- fólk. Víða tíðkast að góð klassísk bók sé þá endurprentuð sérstaklega og boðin á lágu verði. Mér finnst líka nauðsynlegt að velja á hverju ári nokkrar íslenskar skáldsögur og bjóða þær á sérstöku nemendaverði til að auðvelda skólunum kennslu í nútímabókmenntum okkar. Kiljuútgáfu þurfa útgefendur að auka, en það verður ekki gert nema útgefendur, bóksalar og bókelskt fólk taki sig saman og styðji þá útgáfu fyrstu sporin. Barnabækur þurfa að fást víðar en í bókabúðum, til dæmis gætu stór- markaðir stillt barnabókum upp við afgreiðsluborðin í stað sælgætis. Verð á bókum hefur útgefandi ákveðið og það hefur gilt um allt iand. Víða um lönd hafa menn gert tilraunir með verðlagningu, í Frakklandi var til dæmis reynt að gefa verð frjálst en það gafst illa. Þess vegna var brugðið á það ráð að leyfa bóksölum að gefa allt að 5% afslátt af bók ef þeir kærðu sig um. Eg held að þessi háttur Frakka sé til eftirbreytni og mundi vafalaust mælast vel fyrir hjá þeim sem kaupa mikið af bókum. Þannig má lengi telja og endalaust betrumbæta og nota hugmyndaflugið til að auka bóksöluna. En það verður ekki gert nema menn hafi frelsi til að reyna hugmyndir sínar og viðbrögð bókakaupenda við þeim. Fái útgefend- ur og bóksalar þetta frelsi er ég sannfærður um að bókabúðir verða enn skemmtilegri verslanir hér eftir en hingað til. 273
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.