Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1986, Page 25

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1986, Page 25
Nýtt innsxi tilbúnum fyrirmyndum, til dæmis foreldrana. Guðlaugu tekst að tengja eldri tímann nútímanum og kynna okkur um leið lífið á þessum árum. Við verðum jafnframt berlega vör við að vandamálin eru til þótt ekki séu blokkir eða útivinnandi foreldrar í forgrunni. I bók Hreiðars Stefánssonar Grösunum í glugghúsinu kynnumst við aðstæðum sem ekki eru lengur til. Sagan gerist á kreppuárunum og fylgir eftir dreng sem einnig er elstur í stórum systkinahópi. Hún er snilldarlega vel gerð og sýnir á eftirminnilegan hátt lífið í sveit að hætti gamallar tíðar frá sjónarhóli ungs og óreynds drengs. Myndin sem dregin er upp er algerlega „ný“ fyrir nútímabarn sem gerir söguna ef til vill jafn framandi og áhuga- verða og sögur utan úr geimnum. Frásagnarhátturinn er óvenjulegur því sagan er sögð í annarri persónu, en um leið verður lesandi allt að því hluti af frásögninni. Hann tengist söguhetju náið og á auðveldara með að skilja hana. Lesandi finnur að í rauninni er söguhetja ekki ólík börnum nútímans, það vill bara svo til að tími og umhverfi er annað. Sögurnar sem hér eru til umfjöllunar gefa ekki til kynna að umhverfi eða fyrirkomulag fjölskyldunnar séu ein sér undirrót vandans. Aftur á móti kemur hann upp þar sem annars staðar ef svo ber undir. Tvær bækur eftir Andrés Indriðason, Það var skrapa og Elsku barn! setja upp dæmigerða aðstöðu nútímabarns, söguhetjur búa í blokk og í Elsku barni vinna foreldrar þar að auki mikið. Þrátt fyrir það eru engin vandamál sjáanleg. Börnin eru ósköp venjuleg en ekki stórskemmd fórnardýr. í Það var skrxpa snýst söguþráðurinn um ákveðið viðfangsefni barnanna og venjulegar „sandkassadeilur" milli leikfélaga koma upp sem áreiðanlega hafa fylgt börnum frá upphafi. Söguhetjan í Elsku barni styttir sér stundir með auðugu ímyndunarafli sínu eins og svo mörg börn. Hún á góðar stundir með foreldrum sínum þegar þau eru saman, en eins og eðlilegt er vildi hún að þær stundir væru fleiri. Vandamál þurfa ekki lengur að fylgja raunsæjum sögum um nútímabörn. Umhverfið og tímasetningin eru fyrst og fremst til að ná til sem flestra, gera sögurnar sem raunverulegastar og auka áhrifamátt þeirra. Vandamál og lausnir Langflest börnin í þessum bókum eru hæg og hugsi, þau takast á við vandamálin undir yfirborðinu. Hér er Tobías skýrasta dæmið. Einnig er þetta áberandi í Mömmustrák og Grösunum í glugghúsinu. Lesandinn fylgist betur með sálarstríði söguhetja en aðrar persónur í sögunni geta. Langalgengast er að vandinn sé fólginn í samskiptum barnsins og foreldr- anna. Dæmi um það eru Polli er ekkert blávatn, Mömmustrákur, Dagur í 287
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.