Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1986, Side 26

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1986, Side 26
Tímarit Máls og menningar lífi drengs og Tobíasarbœkurnar. Einnig koma fyrir átök um áfengisvand- ann, vistina á dagheimilinu, vandinn að meðtaka fósturforeldri og fleira. Lausnirnar felast ekki í stórkostlegum breytingum heldur þroska sem lítið ber á nema í hugarheimi barnsins. Sögurnar eru misjafnlega djúpt hugsaðar. Sumar hverjar stikla á stóru, rekja framrás ákveðins atviks eða vanda sem síðan leysist án tillits til annarra þátta í lífi barnsins. Slíkar sögur er erfitt að sjá fyrir sér ljóslifandi og því missa þær áhrifamátt. Sem dæmi um þetta má nefna Lenu Sól og Þegar pabbi dó, báðar þunnar og efnislitlar. Aðrar telja fjölda blaðsíðna en eru samt fjarlægar og ótrúverðugar. Dæmi um slíkt er Fbekings-Jói, þar er ekki tekið á neinum vanda, þótt af nógu sé að taka, sagan er eingöngu röð atburða í lítt sannfærandi umhverfi og með ósönnum persónum. I Himnaríki fauk ekki um koll er umhverfi nokkuð raunverulegt. Aftur á móti er lausnin sem hnykkt er á í lokin algjörlega óviðunandi. Þar er áfengisvandamálið gert jafn viðráðanlegt og vesæl sápukúla sem hverfur um leið og hendi er veifað. Þar að auki er gefið í skyn að lausnin sé varanleg, en eins og flestir vita er hún ekki fullreynd á skömmum tíma í raunveruleikan- um. Auk þess er undarlegt að láta alla samúð vera hjá drykkjumanninum en eiginkonan sem mest mæðir á er máluð svört. I Dagur í lífi drengs er engin lausn sjáanleg. Söguhetjan þroskast lítið, engin breyting verður á umhverfi né í huga drengsins. Hann er engu bættari í sögulok. Þar er ekki einu sinni skilningi fyrir að fara. Höfundurinn skilur söguhetju eftir sem yfirgefið fórnarlamb vanþroska foreldra í lífsgæðakapp- hlaupi. I bókunum Mömmustrákur og Vera er tekið meðal annars á vandanum að sætta sig við nýtt foreldri. Höfundarnir gera þetta vel en þó er eins og Vera sannfæri lesandann betur þó að hún sé styttra mál. Söguhetjan er einstaklega trúverðug, lítil ákveðin hnáta sem spilar á umhverfi sitt eftir því sem hentar best. Vandamálin í sögunni eru eins og lækjarniður í bakgrunninum, þau eru þarna en mesta áherslan er á daglegu lífi Veru. Við sjáum hvernig hún sættir sig smátt og smátt við ástandið án þess að of mikið sé gert úr hugarangrinu. I Mömmustrák er meiri áhersla á vanlíðan drengsins. Hann stendur ekki einn að lausninni eins og í Veru heldur fær hann umtalsverða hjálp. I sögunni Polli er ekkert blávatn er vandinn fólginn í vanþroska foreldr- anna og jafnframt áfengisvanda föðurins. Söguhetja er tíu ára hugsandi drengur sem á foreldra sem stöðvuðust einhvers staðar á þroskabrautinni. Við fylgjumst með því hvernig drengurinn fer framúr foreldrunum í þroska og hann umgengst þau eins og fullorðinn umgengst börn. I lokin er engin breyting í augsýn í þá veru sem hann vonaðist eftir. Aftur á móti er hann 288
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.