Tímarit Máls og menningar - 01.09.1986, Blaðsíða 53
Dansað á línu
Auðvitað.
Hvernig fannst þér kvikmyndin um Jón Odd ogjón Bjarnaf
Ég held að hún sé ágæt, en mér fannst erfitt að horfa á hana. Þráinn
Bertelsson sló saman öllum þremur bókunum um þá bræður og bjó til
handritið. Auðvitað var þetta öðruvísi mynd en bækurnar eru, mynd er
mynd og bók er bók. Myndin hefur fengið góðar viðtökur, líka erlendis.
Varstu eitthvað með í ráðum við gerð hennarf
Nei, ég kann ekkert fyrir mér í kvikmyndagerð. Ég held að það sé mikill
vandi að taka bók og gera úr kvikmynd. I flestum tilvikum held ég að
heppilegra sé að kvikmynd sé skrifuð sem slík frá upphafi.
Finnst þér skipta máli að það sé boðskapur í bókumf
Ég vil fyrst og fremst að bók hafi einhverja merkingu. Maður er sjálfsagt
að predika sín sjónarmið en ég hef reynt að gera það varlega. Ef þið hafið
lesið bókina hennar Silju um íslenskar barnabækur þá sjáið þið að hún setti
sér ákveðinn ramma og hún dregur ekki dul á að henni finnst ég ekki falla
inn í hann. Það hafa margir spurt mig hvort ég hafi ekki verið óánægð með
umfjöllunina um bækur mínar þar, en það er langt í frá. Silja gerir það mjög
heiðarlega, en ég var bara ekki að skrifa svona bækur. Þær geta sjálfsagt
verið góðar, en ég held að bein „pedagógík" í barnabókum sé óttalega
mislukkuð. Ég held að börn eigi að fá bækur sem þeim finnst gaman að. I
Svíþjóð fannst þeim ég ekki alveg „lösa alla problemer", þar varð allt að
ganga upp. Pólitísk innræting er ekki illa séð þar. Silja kvartar undan því að
bækurnar um Jón Odd ogjón Bjarna fjölluðu um miðstéttarfólk. Guð minn
almáttugur, hver segir að ekki megi skrifa um miðstéttarfólk? Það er ekkert
að því að skrifa bækur um heildsalabörn fremur en börn verkafólks. Hin
síðarnefndu eru ekkert betri en þau fyrrnefndu!
Reynir þú að koma pólitískum skoðunum þínum áleiðis í bókunumf
Ég er náttúrlega ég og þar af leiðandi hljóta mínar bækur að bera keim af
mér, en ég vona að ég sé ekki að segja börnunum að þegar þau stækki eigi
þau að kjósa Alþýðubandalagið! Harðir andstæðingar mínir í stjórnmálum
sem hafa gaman af bókunum segja stundum: „Þú ert nú enginn sósíalisti,
Guðrún!“ Það er skýring þeirra á því að þeir lesa bækurnar fyrir börnin sín.
En sú skýring er alröng. Þeir verða bara að bíta í það súra epli að ég er þá
skemmtilegur sósíalisti!
Hvað með myndskreytingar í bókunum. Vinnurðu mikið með teikn-
urumf
Nei, satt að segja hef ég ekki gert það. Fyrst kunni ég ekkert á þetta. Það
vantaði einhvern til að teikna og því bjargaði vinkona mín, Kolbrún Kjarval,
sem er reyndar alls ekki teiknari heldur leirkerasmiður. En hún gerði þetta
prýðilega. Síðar tók Sigrún Eldjárn við og hefur myndskreytt margar bóka
315