Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1986, Blaðsíða 77

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1986, Blaðsíða 77
Guðjón Sveinsson tilfinningar þeirra, sýnir hlutina einungis á yfirborðinu. Þetta verður eins og röð af eftirminnilegum atvikum sem hafa verið tengd saman í eina frásögn. Myndir vantar tilfinnanlega í þessar bækur. Til dæmis vita ekki nærri allir hvernig sláttuþyrla lítur út, né aðrir hlutir sem Sævar segir frá. Frásögnin býður líka oftar en ekki upp á skemmtilegar hugmyndir að myndefni, sem myndi auka gildi sögunnar. I heildina er þetta fræðandi samtímalýsing, sem vísar beint til atburða og persóna í þjóðlífinu til að festa frásögnina betur. Smásögur Guðjóns eru af allt öðrum toga. I þeim miðlar hann af eigin reynslu og tilfinningarnar fá að njóta sín óhindrað. Sögunum má skipta í tvennt, annars vegar þær sem gerast í bernskunni, hins vegar sögur sem gerast á táningsárunum og þá úti á sjó. Sagan Morgundögg birtist í smásagnasafninu Revesommer og einnig í Tímariti Máls og menningar (3. hefti, 1982). Hún lýsir lífinu eins og það blasir við sveitapilti, sem er vakinn fyrir allar aldir til þess að fara niður í sjávarplássið og vinna við beitningu. Þar kynnist hann ruddalegum karla- móral, sem ásamt miklu vinnuálagi er að buga hann. Hann hefur minni- máttarkennd gagnvart þreklegum fermingarbróður sínum, sem djöflast áfram eins og þeir fullorðnu. Drengurinn hefur yfir höfuð enga löngun til þess að vinna þarna, en: „Þú verður að fara að vinna, fermdur maðurinn,“ hafði faðir hans sagt, /. . . / það var bara einn stór galli á þessari ákvarðanatöku föðurins, drengurinn hafði ekki áhuga á þessu starfi. Hann ætlaði að verða skáld og þau mátti ekki hneppa í fjötra innan fjögurra veggja óhrjálegs beitningaskúrs. Þau áttu að ganga frjáls úti í náttúrunni, hlusta á þyt vindanna og hjal lækjanna, anda að sér ilmi blómanna og horfa á myndsköpun skýjanna, festa þau áhrif á pappír. Þar var hugurinn frjáls, en í beitningaskúrnum var hann í eins konar gapa- stokk. Þar var ekki hægt að hugsa. (Revesommer, 89—90) Þetta er meginhugsun sögunnar. Drengurinn þráir frelsið, vill ekki sætta sig við veruleikann og stritið sem honum fylgir. I lok sögunnar leggur hann á flótta. Hann hleypur í átt til fjalla frá sjónum, — frá veruleikanum til draumsins. Sagan Helga kom í smásagnasafninu Gúmmískór með gati og fjallar um svipað efni, dreng sem sættir sig ekki við hlutina eins og þeir eru. Hann vill flýja, en gömul kona verður til þess, að hann sættir sig við ríkjandi ástand. Drengurinn hafði verið sendur á annan bæ um stundarsakir vegna óknytta heima fyrir. 339
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.