Tímarit Máls og menningar - 01.09.1986, Blaðsíða 82
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
Elías kraftaverkamaður
Elías var upphaflega sjónvarpsstjarna í Stundinni okkar og öðlaðist strax
miklar vinsældir áhorfenda. Samkvæmt tíðarandanum sem krefst afþreying-
ar og markaðslögmálinu var vinsældunum síðan fylgt eftir með útgáfu bóka
um þennan sama Elías. Fyrsta bókin, „Elías" (1983), er eftir Auði Haralds
og Valdísi Oskarsdóttur, en tvær hinar seinni eftir Auði eina: „Elías í
Kanada“ (1984), og „Elías á fullri ferð“ (1985). Bækurnar eru allar gefnar út
af Iðunni.
Það er einkenni á Elíasarbókunum hve mjög höfundur leitast við að vera
fyndinn. Honum tekst líka oft bráðvel upp.
Persónur og samfélag
Aðalpersónan Elías er um það bil tólf ára gamall. Hann segir sjálfur söguna.
Persónur eru fáar, auk Elíasar eru það foreldrar hans, tvær ömmusystur,
nágrannar í Kanada, rússneskrar ættar, tveir vinir Elíasar, Simbi á íslandi og
Jón Indíánadrengur í Kanada. Fleiri koma þó við sögu, sérstaklega í síðustu
bókinni. Persónurnar eru allar farsakenndar týpur.
I fyrStu bókinni eru aðalpersónurnar kynntar. Móðirin Elva er tannsmið-
ur, faðirinn Guðmundur er brúarverkfræðingur, ögn spældur yfir að hafa
ekki fengið að brúa Skeiðarársand. Til að ráða bót á særðu stolti heim-
ilisföðurins leitar fjölskyldan til Kanada því þar er nóg að brúa. Sögusvið
fyrstu bókarinnar er Island en hinna tveggja Kanada. Móðursystur Elvu,
Magga móða og Hildigunnur kölluð Hilda, eru ógiftar og barnlausar, full-
trúar hinna velþekktu frænkna sem eru tilbúnar að ráðskast með þau öll,
ekki síst Elías — reyndar í óþökk þolendanna. Sérstaklega á þetta þó við um
Möggu enda er hún eitt af stærstu vandamálum fjölskyldunnar. Það kemur
alltaf í hlut Elíasar að greiða úr flækjunni sem Magga móða skapar.
Elías er ákaflega þroskaður miðað við aðrar persónur í bókunum, allt að
því yfirnáttúrulegur, einna líkastur súpermanni. Það eru Simbi og Jónlíka.
Það eru m. ö. o. börnin sem eru fulltrúar skynseminnar. Fullorðna fólkið
klúðrar hinsvegar öllu og kemur sér stöðugt í vandræði. Einstök söguefni
eru vel þekkt úr daglega lífinu en bara ýkt.
Elías er ómissandi fyrir foreldra sína. Hann er endalaust látinn um
vandasöm verkefni eins og að skýra út fyrir Möggu að hennar sé ekki þörf. I
344